

Hjúkrunarfræðingur á ferð og flugi um borgina
- Ert þú atorkumikill hjúkrunarfræðingur í leit að nýjum og ferskum áskorunum?
- Viltu sinna fjölbreyttum hópi fólks víðsvegar um borgina, þar sem verkefnin spanna allt litróf hjúkrunar?
- Viltu fá tækifæri til að veita sérhæfða hjúkrunarþjónustu til fólks í borginni og kynnast þeirri fjölbreytni sem starfið býður upp á?
- Viltu upplifa töfra þess að hjúkra fólki í þeirra eigin umhverfi?
- Viltu kynnast því hvernig er að starfa við hjúkrun í samþættri heimaþjónustu?
- Viltu taka þátt í að þróa og innleiða nýjar leiðir til að veita heilbrigðisþjónustu í umhverfi sem tekur sífelldum breytingum?
Ef svarið er JÁ- þá ert þú tilvalinn liðsmaður til að taka þátt í að móta framtíðar heimaþjónustu í breyttu landslagi heilbrigðiskerfisins.
Ef þú vilt hoppa á vagninn- skelltu þá inn umsókn!
Við vekjum athygli á nýgerðum kjarasamningum Reykjavíkurborgar og Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Hjúkrunarfræðingar í heimaþjónustu sinna margvíslegum verkefnum á sviði hjúkrunar, þar sem markmiðið er að fólk og fjölskyldur njóti betri og einstaklingsmiðaðri þjónustu til að styðja við og hámarka heilsu, vellíðan og sjálfstæði.
Reykjavíkurborg er leiðandi í samþættri heimaþjónustu og veitir þjónustu í fremstu röð. Við í Norðurmiðstöð leitum að hjúkrunarfræðingum til að ganga til liðs við okkar frábæra starfsmannahóp. Starfshlutfall og vinnutími er samkomulag.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Góð samskipta og skipulagshæfni
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
- Ökuréttindi
- Íslenskukunnátta á bilinu B2-C2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Þekking og reynsla af sjúkraskrárkerfinu Sögu og RAI mælitækjum æskileg
- Samgöngustyrkur
- Heilsustyrkur
- Menningarkort
- Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar
- 36 stunda vinnuvika
- Mötuneyti
- Fjölskylduvænt starfsumhverfi



































