

Launafulltrúinn - Frá launavinnslu til sérfræðiþek
Viltu ná tökum á launamálum og verða öruggari í einu mikilvægasta hlutverki fyrirtækisins?
Á þessu hagnýta og spennandi námskeiði öðlast þátttakendur traustan grunn í launavinnslu og fá innsýn í þau fjölmörgu atriði sem launafulltrúar þurfa að kunna á hverjum degi.
Við förum yfir laun, skatt, orlof, veikindi, fæðingarorlof, frádrátt, kjarasamninga og réttindi starfsfólks – en leggjum jafnframt áherslu á verklag, nákvæmni og þau raunverulegu verkefni sem koma upp í launavinnslu.
Námskeiðið er fjórar vikur og byggist upp á fyrirlestrum, fjarfundum, verkefnum og krossaprófum til æfingar.
Kennari setur inn fyrirlestra sem þátttakendur geta hlustað á þegar þeim hentar.
Verkefni byggja á raundæmum sem þátttakendur þurfa að vinna úr og koma með lausn á.