Símenntun Háskólans á Akureyri
Símenntun Háskólans á Akureyri
Símenntun Háskólans á Akureyri

Meðvirkni málstofa 3: Hvað kom fyrir þig?

Skráningu lýkur 20. nóvember!

Finnur þú oft fyrir líðan annarra áður en nokkur segir orð? Segir þú já áður en þú nærð að hugsa þig um? Eða upplifir þú að líkaminn fari í viðbragðsstöðu þótt engin augljós hætta sé til staðar?

Í þessari 90 mínútna málstofu skoðum við hvernig reynsla úr uppvexti, áföll og langvarandi streita geta mótað hegðunarmynstur okkar og viðbrögð í dag. Við beinum sjónum að því hvernig meðvirkni getur þróast sem leið til að skapa öryggi og takast á við erfiðar aðstæður.

Við kynnumst streituviðbrögðunum fjórum – að berjast, flýja, frjósa og þóknast – og skoðum hvernig þau geta birst í samskiptum og tengslum á fullorðinsárum. Einnig ræðum við áhrif vanrækslu í uppeldi, skömm og tengslin milli tilfinninga og líkamlegra viðbragða.

Þátttakendur fá tækifæri til að skoða eigin viðbrögð í gegnum verkefnavinnu og stutta, leidda æfingu þar sem áhersla er lögð á öryggi og eigin mörk.

Markmiðið er að öðlast meiri skilning á eigin hegðun og læra að mæta sjálfum sér af meiri mildi í stað sjálfsgagnrýni.

Tími: Föstudagur 27. nóvember 2026, kl. 17:30–19:00
Lengd: 90 mínútur
Kennarar: Baldur Einarsson og Barbara Hafey Þórðardóttir

Hefst
27. nóv. 2026
Tegund
Staðnám
Tímalengd
1 skipti
Verð
15.000 kr.
Deila
Senda í Messenger
Deila með öðrum
Afrita hlekk
Flokkar