

Meðvirkni málstofa 4: Tilfinningar og tengsl
Skráningu lýkur 20. nóvember!
Áttu erfitt með að segja frá eigin tilfinningum og þörfum? Finnst þér sömu ágreiningsmálin koma aftur og aftur upp í samböndum? Eða þráir þú nánd en átt erfitt með að finna öryggi í tengslum við aðra?
Í þessari 90 mínútna málstofu skoðum við hvernig tengslamynstur mótast og hvaða áhrif þau geta haft á samskipti okkar, tilfinningar og náin sambönd.
Við kynnumst ólíkum tengslamynstrum, meðal annars kvíðatengslum og forðunartengslum, og skoðum hvernig þau geta haft áhrif á viðbrögð okkar þegar við upplifum óöryggi eða ágreining.
Einnig förum við yfir þrjár grundvallarspurningar úr tilfinningamiðaðri parameðferð og riddarana fjóra samkvæmt Gottman – gagnrýni, varnarviðbrögð, fyrirlitningu og að múra sig af – ásamt leiðum til að bæta samskipti.
Með fræðslu og hagnýtum verkefnum æfa þátttakendur sig í að þekkja eigin tilfinningar, tjá þarfir sínar og eiga uppbyggilegri samskipti.
Þú ferð heim með tilfinningadagbók og einföld verkfæri sem geta hjálpað þér að byggja upp heilbrigðari og öruggari tengsl.
Tími: Laugardagur 28. nóvember 2026, kl. 14:00–15:30
Lengd: 90 mínútur
Kennarar: Baldur Einarsson og Barbara Hafey Þórðardóttir