Yfiriðjuþjálfi Landspítala
Laus er til umsóknar staða yfiriðjuþjálfa Landspítala. Um er að ræða yfiriðjuþjálfa starfstöðva iðjuþjálfa á klínískum sviðum Landspítala.
Við leitum eftir kraftmiklum stjórnanda til að vera í forystu og leiða og efla starfsemi á Landspítala.
Yfiriðjuþjálfi Landspítala er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. júlí 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Starfið er ábyrgðarmikið og krefjandi og reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfni. Viðkomandi mun starfa í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, aðra stjórnendur og samstarfsfólk.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, þróun og skipulagi iðjuþjálfunar á Landspítala
- Stuðlar að þekkingarþróun og kennslu og hvetur til vísindastarfa
- Fjárhagslega ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði og áætlanagerð á starfstöðvum einingarinnar
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks
- Stuðlar að öflugu þverfaglegu samstarfi, samstarfi á milli starfseininga og við deildir spítalans til hagsbóta fyrir sjúklinga og aðstandendur
- Íslenskt starfsleyfi iðjuþjálfa
- Farsæl starfsreynsla sem iðjuþjálfi
- Viðbótamenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
- Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar
- Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. fagleg ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagsleg ábyrgð
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum er kostur og sýn til framtíðar
- Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta