Mannauðsstjóri
Landspítali leitar að öflugum einstaklingi með mikla reynslu af mannauðsmálum í starf mannauðsstjóra á klínísku sviði skurðlækninga, skurð- og gjörgæsluþjónustu.
Mannauðsstjóri sviðs sinnir virkri þátttöku, ráðgjöf og stuðningi við stjórnendur og starfsfólk sviðsins í öllum verkþáttum mannauðsmála, þ.e. í ráðningum, þjálfun og starfsþróun, endurgjöf, kjaramálum, samskiptum, heilsu og öryggi, í samræmi við stefnu Landspítala hverju sinni. Mannauðsstjóri sviðs tekur einnig þátt í miðlægum mannauðsverkefnum með mannauðsdeild spítalans.
Á skurð- og gjörgæsluþjónustu starfa um 1200 einstaklingar í 900 stöðugildum undir fimm kjörnum og verður hlutverk mannauðsstjórans að sinna þremur kjörnum, þ.e. sérgreinum skurðlækninga, ferliþjónustu auk dag- og legudeilda, en tveir mannauðsstjórar skipta með sér kjörnum sviðsins í heild.
Leitað er að kraftmiklum einstaklingi sem brennur fyrir málstað mannauðsmála og spítalans. Starfið er ábyrgðarmikið og krefjandi og reynir á frumkvæði, stefnumótandi hugsun og samskiptahæfileika. Mannauðsstjóri heyrir undir framkvæmdastjóra rekstrar- og mannauðssviðs og vinnur náið með öðrum mannauðsstjórum og stjórnendum skurð- og gjörgæsluþjónustu.
Í boði er frábær vinnuaðstaða, fyrsta flokks mötuneyti og stytting vinnuvikunnar. Starfshlutfall er 100% og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
- Ráðningar, öflun umsækjenda og framkvæmd ráðningaferla
- Launasetning, gerð ráðningasamninga og innleiðing stofnana- og kjarasamninga
- Vinnuvernd, heilsa og öryggi starfsfólks
- Upplýsingastreymi og úrvinnsla samskiptamála
- Ráðgjöf og stuðningur við stjórnendur
- Innleiðing breytinga og verklags í mannauðsmálum sviðs
- Teymisvinna og þátttaka í miðlægum verkefnum á sviði mannauðsmála með mannauðsdeild
- Þátttaka í stefnumótun og samræmingu mannauðsmála Landspítala
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, viðbótarmenntun á sviði mannauðsmála eða sambærileg menntun skilyrði
- Þekking og reynsla af mannauðsstjórnun skilyrði
- Leiðtoga- og skipulagshæfni
- Metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Færni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðhorf, lausnamiðuð vinnubrögð og rík þjónustulund
- Örugg og fagleg framkoma
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli