Hjúkrunarnemar á heila-, tauga- og öldrunarbæklunarskurðdeild B6
Við óskum við eftir að ráða í lausar stöður 1.-4. árs hjúkrunarnema. Starfshlutfall og upphaf starfa er samkomulag. Við sækjumst eftir hjúkrunarnemum í sumarstarf og einnig kemur til greina hlutastarf með skóla frá og með hausti. Ráðið er í störfin sem fyrst.
Deildin þjónustar sjúklinga eftir aðgerð eða áverka á heila, mænu og taugum. Hágæslueining fyrir heila- og taugaskurðsjúklinga er einnig starfsrækt innan deildarinnar. Auk þess þjónustar deildin einstaklinga 67 ára og eldri sem hljóta mjaðmabrot. Unnið er eftir hugmyndafræði um flýtibata og mikil áhersla er á teymisvinnu og þverfaglegt samstarf. Á B6 starfar um 60 manna samheldinn hópur fagfólks og ríkir góður starfsandi. Markvisst er unnið að gæðum og umbótum og góð tækifæri eru til starfsþróunar og í boði er einstaklingsbundin aðlögun.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í .
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.