Hjúkrunardeildarstjóri á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Við leitum eftir öflugum leiðtoga sem býr yfir færni í stjórnun, rekstri og eflingu mannauðs, til að leiða starfsemi kviðarhols- og þvagfæraskurðdeildar. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing og annað starfsfólk. Hjúkrunardeildarstjóri þarf að búa yfir afburða hæfni í samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar, við aðra stjórnendur og samstarfsaðila. Deildarstjóri er yfirmaður hjúkrunar á deildinni, stjórnar daglegum rekstri og er leiðandi um hjúkrunarfræðileg málefni.
Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur dag- og legudeilda. Starfshlutfall er 100% dagvinna og veitist starfið frá 1. ágúst 2024.
Kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Á deildinni starfa um 100 starfsmenn, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum og á öðrum deildum spítalans. Deildin þjónar einstaklingum sem glíma við sjúkdóma í efri og neðri hluta meltingarvegar og í þvagfærum. Deildin er opin allan sólarhringinn alla daga ársins. Vinnutímaskipulag deildar er vaktavinna og unnið er á þrískiptum vöktum.