Hjúkrunarfræðingur - Blóðbankinn Glerártorgi
Hjúkrunarfræðingur óskast til starfa hjá Blóðbankanum Glerártorgi. Við bjóðum jafn velkominn í okkar góða hóp nýútskrifaðan hjúkrunarfræðing sem og hjúkrunarfræðing með reynslu. Starfið er bæði fjölbreytt og krefjandi og mikil tækifæri til faglegrar þróunar. Rík áhersla er lögð á góða og einstaklingsmiðaða aðlögun undir handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga.
Um er að ræða dagvinnu með breytilegan vinnutíma. Starfshlutfall er eftir samkomulagi og er starfið laust nú þegar.
Blóðbankinn sinnir m.a. söfnun blóðs, blóðhlutavinnslu, geymslu blóðhluta, blóðflokkunum afgreiðslu blóðhluta og gæðaeftirliti.
Í Blóðbankanum starfa um 55 manns, hjúkrunarfræðingar, líffræðingar, lífeindafræðingar, læknar og skrifstofumenn og er Blóðbankinn eini sinnar tegundar á landinu. Þar er unnið samkvæmt vottuðu gæðakerfi og er markmið allra starfsmanna að viðhalda gæðakerfinu og vinna í samræmi við hlutverk og stefnu Blóðbankans.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.