Sólvangur hjúkrunarheimili
Sólvangur hjúkrunarheimili
Sólvangur hjúkrunarheimili

Sólvangur - Hjúkrunarfræðingur

Brennur þú fyrir eldri borgurum, skemmtilegu samstarfsfólki og ert hjúkrunarfræðingur, þá erum við að leita að þér.

Fjölbreytt verkefni í boði í nýju og vel útbúnu húsnæði. Framundan er spennandi uppbygging sem býður uppá frekari tækifæri. Við bjóðum íþróttastyrk og niðurgreiddan hádegismat.

Vinnufyrirkomulag og starfshlutfall er samkomulagsatriði. Staðan er laus strax eða eftir samkomulagi. Íslenskukunnátta er skilyrði.

Á Sólvangi eru hjúkrunarfræðingar lykilaðilar í faglegu og metnaðarfullu starfi þar sem umhyggja, virðing, gleði, öryggi og vellíðan eru leiðarljós í leik og starfi.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæði, frumkvæði og faglegur metnaður
  • Jákvætt viðmót
Auglýsing stofnuð17. apríl 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Sólvangsvegur 2, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar