Árbæjarskóli
Árbæjarskóli

Þroskaþjálfi óskast til starfa í Árbæjarskóla

Árbæjarskóli er heildstæður grunnskóli staðsettur í einstöku umhverfi Elliðaárdalsins. Nemendur eru um 730 talsins en skólinn er safnskóli á unglingastigi. Starfsmenn skólans eru um 100 og er starfsandi mjög góður. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur ríka áherslu á vandaða móttöku allra nemenda. Við skólann starfar foreldrafélag og samvinna við foreldra og grenndarsamfélag er gott.

Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir frumkvæði og vill vinna í góðu og jákvæðu umhverfi. Um er að ræða 60-100% starf frá 15. ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna með nemendum í almennu skólaumhverfi og sérúrræði.
  • Vinna að áætlunargerð í samstarfi við kennara, foreldra o.fl.
  • Sjá um námsmat, færnimat og vitnisburð í samstarfi við kennara, foreldra o.fl.
  • Útbúa kennslu- og/eða þjálfunargögn og fylgja eftir settum markmiðum.
  • Samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
  • Vinna að og fylgja eftir gerð einstaklingsnámskráa.
  • Stýra teymisvinnu í kringum nemendur, bera ábyrgð á samvinnu við foreldra og fagaðila utan skólans í samvinnu við kennara.
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
  • Önnur afmörkuð verkefni innan skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi
  • Menntun og hæfni til þjálfunar í grunnskóla.
  • Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Faglegur metnaður.
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og góð samskiptahæfni
  • MJÖG GÓÐ íslenskukunnátta.
Auglýsing stofnuð24. apríl 2024
Umsóknarfrestur6. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Rofabær 34, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þroskaþjálfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar