

Viltu horfa út í heim? Verkefnastjóri í erlendum verkefnum
Við leitum að verkefnastjóra til að stýra verkefnaþróun okkar erlendis, með áherslu á viðskiptalega hlið verkefna.
Landsvirkjun þróar og fjárfestir í endurnýjanlegri raforkuvinnslu á erlendri grundu. Með því viljum við flytja út og efla íslenskt hugvit, auka kraft okkar í baráttunni við loftslagsbreytingar og skapa verðmæti fyrir íslensku þjóðina. Norðurslóðir eru í forgrunni hjá okkur og þar eru mörg áhugaverð verkefni í undirbúningi.
Starfið felur m.a. í sér umsjón með samstarfi við heimafólk, mat og þróun viðskiptatækifæra, gerð viðskiptaáætlana og samningagerð. Starfið er í deild Erlendra verkefna á sviði Viðskiptaþróunar og nýsköpunar, en verkefni eru almennt unnin í nánu samstarfi við t.d. auðlindasvið Landsvirkjunar, erlend orkufyrirtæki og aðra aðila.
- háskólamenntun sem nýtist í starfi
- reynsla af alþjóðlegri viðskiptaþróun
- færni í og ánægja af mannlegum samskiptum, teymisvinnu og samstarfi við ólíka aðila
- skipulagsfærni og lausnamiðað hugarfar
- hæfni við að tjá sig og setja fram upplýsingar á skýran hátt á ensku











