PwC
PwC
PwC

Ert þú upprennandi endurskoðandi?

Viltu öðlast dýrmæta reynslu hjá alþjóðlegu þekkingarfyrirtæki og og efla hæfni þína í endurskoðun og reikningsskilum?

Við leitum að drífandi og metnaðarfullum einstakling með áhuga á endurskoðun og reikningsskilum til að ganga til liðs við skrifstofu okkar á Akureyri. Við bjóðum upp á tækifæri til að vaxa í starfi, sveigjanlegt starfsumhverfi og að öðlast starfsreynslu hjá alþjóðlegu þekkingarfyrirtæki. Þetta starf er tilvalið fyrir aðila sem hefur áhuga á viðskiptafræði og stefnir jafnvel að, er skráð/ur í eða hefur lokið mastersgráðu í endurskoðun og reikningsskilum.

Viðkomandi mun starfa í fjölbreyttum verkefnum undir leiðsögn sérfræðinga í endurskoðun og reikningsskilum og mynda náin tengsl við löggilta endurskoðendur, sérfræðinga í bókhaldi og aðra nema í endurskoðun.

Þetta er kjörið tækifæri fyrir þig til að vaxa og þróast sem fagmanneskja í spennandi umhverfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

●      Þátttaka í undirbúningi og framkvæmd endurskoðunar og reikningsskila fjölbreyttra fyrirtækja, stofnana, sveitarfélaga og annarra lögaðila

●      Þátttaka í uppgjörum og uppsetningu ársreikninga

●      Aðkoma að bókhaldsverkefnum

●      Önnur tengd og tilfallandi störf

Menntunar- og hæfniskröfur

●      Bachelor gráða í viðskiptafræði, hagfræði eða annarri tengdri námsgrein

●      Ástundun meistaranáms í reikningsskilum og endurskoðun, eða að hafa lokið slíku námi, er kostur

●      Starfsreynsla í skrifstofuumhverfi og bókhaldi er kostur

●      Metnaður til að ná árangri í starfi

●      Skipulagshæfni og vönduð vinnubrögð

●      Hæfni til að vinna í hóp

●      Sjálfstæði, frumkvæði og sterk samskiptahæfni

Auglýsing birt24. júlí 2025
Umsóknarfrestur18. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Glerárgata 30, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vandvirkni
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar