
Fjármálastjóri
Umbra óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling til að annast daglega fjármálastjórn og vinna að þróun og sjálfvirknivæðingu fjármálaferla. Ef þú ert með bakgrunn í fjármálum og brennandi áhuga á að nýta nýjustu tæknilausnir til að auka skilvirkni þá gætir þú verið rétta manneskjan í starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjármálastjórn, áætlanagerð, uppgjör og reikningshald
- Stjórnun á daglegum fjármálatengdum verkefnum og samskipti við Fjársýslu ríkisins sem annast almenna bókhaldsþjónustu og launavinnslu
- Ábyrgð á umsýslu hugbúnaðarleyfa, en Umbra annast reikningagerð vegna Microsoft og fleiri hugbúnaðarleyfa fyrir stofnanir ríkisins
- Framþróun á ferlum tengdum fjármálum, þ.m.t. reikningagerð, upplýsingagjöf og uppgjörum
- Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast rekstri Umbru, s.s. aðkoma að mannauðsmálum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. á sviði viðskipta eða fjármála
- Reynsla og áhugi á fjármálastjórnun
- Reynsla af reikningshaldi er kostur
- Góð greiningarhæfni, framsetning og miðlun fjárhagsupplýsinga
- Drifkraftur, hugmyndaauðgi og lausnamiðuð hugsun
- Góð samskiptahæfni
- Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
- Mjög góð tölvukunnátta
Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins veitir ráðuneytum og stofnunum margvíslega þjónustu á sviði upplýsingatækni og annars sameiginlegs reksturs. Hjá Umbru vinnur fjölbreyttur hópur saman að því að veita framúrskarandi þjónustu í góðu umhverfi. Umbra er ISO 27001 vottuð og starfsmenn eru um 50 talsins. Skrifstofur Umbru eru í Skuggasundi 3.
Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs og hlutaðeigandi stéttarfélags. Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225.













