

Við erum að ráða í fjármáladeild Deloitte
Deloitte er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar, skatta– og lögfræðiráðgjafar og tengdrar þjónustu. Alþjóðlegt net aðildarfélaga okkar og tengdra félaga spannar meira en 150 lönd og landsvæði (sameiginlega vísað til sem „félög Deloitte"). Hjá Deloitte starfa um 460.000 sérfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu þar af eru 360 á Íslandi
Deloitte leitar að starfskrafti á fjármáladeild félagins.
Um teymið
Fjármáladeild tilheyrir Rekstrarsviði sem samanstendur að auki af viðskipta- og markaðstengslum, tölvudeild og þjónustudeild. Bakgrunnur fólksins okkar er m.a. úr viðskiptafræði, kerfisstjórnun, sálfræði, lögfræði og fjármálum.
- Færsla viðskiptamannabókhalds
- Afstemmingar
- Svörun fyrirspurna og afgreiðsla beiðna frá viðskiptavinum
- Aðstoð við umsýslu krafna og innheimtu
- Önnur tilfallandi verkefni
- Reynsla af færslu bókhalds er skilyrði
- Reynsla af Business Central kostur
- Skipulag og nákvæmni
- Metnaður til að skila góðum afurðum
- Þú nýtur þín í teymi en getur unnið sjálfstætt
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
- Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
- Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
- Góðan aðbúnað í skrifstofuhúsnæði okkar að Dalvegi 30
- Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
Íslenska
Enska










