Origo ehf.
Origo ehf.
Origo ehf.

Greinandi hjá Skyggni Eignarhaldsfélagi

Skyggnir leitar að metnaðarfullum greinanda

Skyggnir er hreyfiafl í upplýsingatækni á Íslandi. Við leggjum okkur fram um að koma auga á tækifæri til framfara og þróunar í íslenskri upplýsingatækni, hvort sem slík tækifæri verða til innan eða utan eignasafns Skyggnis. Eignasafn Skyggnis samanstendur af leiðandi félögum í upplýsingatækni, meðal annars Origo, Helix, Syndis, Ofar, Aftra auk annarra.

Við leitum að metnaðarfullum greinanda til að starfa með forstjóra Skyggnis og stjórnendum tengdra félaga að margvíslegum greiningum, fyrirtækjaþróun auk kaupa og sölu á fyrirtækjum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnsla, greining og framsetning fjárhags- og rekstrargagna

  • Rekstrargreiningar og stuðningur við ákvörðunartöku stjórnenda félaga í eigu Skyggnis

  • Verðmat og greining viðskiptatækifæra

  • Verkefnastýring í kaupum og sölu á fyrirtækjum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi t.d. rekstrarverkfræði, hagfræði eða viðskiptafræði

  • Reynsla af fjárhags- og/eða rekstrargreiningum

  • Sterk greiningarhæfni og færni i gagnaúrvinnslu og framsetningu

  • Áhugi og þekking á íslensku og erlendu atvinnulífi

  • Frumkvæði, sjálfstæði og góð samskiptafærni

Fríðindi

  • Gagnkvæmt traust og sveigjanleiki

  • Að vera hluti af frábæru teymi

  • Fyrsta flokks tækni, frábært starfsumhverfi og öflugt félagslíf

  • Vinnustaður sem leggur áherslu á heilsu og býður upp á frábært mötuneyti

  • Hvatningu til að þróast í starfi og efla þekkingu

Um er að ræða frábært tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling til að vinna með reynslumiklum stjórnendum í upplýsingatækni að spennandi verkefnum.

Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.

Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur19. febrúar 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar