

Aðalbókari á fjármálasviði Origo
Origo leitar að öflugum aðalbókara til starfa á fjármálasviði
Origo er þjónustu- og þekkingarfyrirtæk sem vinnur með fyrirtækjum að því að ná forskoti í breyttum heimi þar sem tæknin skiptir öllu máli. Á fjármálasviði Origo starfar samhentur hópur sérfræðinga sem styður við fjármál og rekstur Origo auk annarra félaga í eigu Skyggnis eignarhaldsfélags. Við leitum að reynslumiklum bókara sem hefur gott auga fyrir smáatriðum, er skipulagður og vill taka virkan þátt í að þróa fjárhagsferla hjá spennandi fyrirtæki í kviku umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Daglegt bókhald
-
Yfirsýn fjárhagsferla og bókhalds
-
Þátttaka i mánaðaruppgjörum, ársuppgjörum og endurskoðun
-
Leiða umbætur, þróun og sjálfvirknivæðingu bókhaldsferla
-
Önnur tilfallandi verkefni á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Menntun sem nýtist í starfi t.d. í viðskiptafræði, reikningsskilum og endurskoðun eða sem viðurkenndur bókari
-
Mikil reynsla af reikningshaldi og uppgjörsvinnu nauðsynleg
-
Kunnátta og reynsla af Business Central er mikill kostur
-
Nákvæmni, jákvæðni og rík þjónustulund
-
Lausnamiðuð hugsun og áhugi á umbótum
Fríðindi
-
Að vera hluti af frábæru teymi
-
Gagnkvæmt traust og sveigjanleiki
-
Fyrsta flokks tækni, frábært starfsumhverfi og öflugt félagslíf
-
Vinnustaður sem leggur áherslu á heilsu og býður upp á frábært mötuneyti
-
Hvatningu til að þróast í starfi og efla þekkingu
-
Ýmis fríðindi og styrkir s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur o.fl.
Umsóknarfrestur er til og með 19. febrúar. Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað.











