Travel Connect
Travel Connect
Travel Connect

Innheimtufulltrúi á fjármálasviði

Travel Connect óskar eftir öflugum og lausnamiðuðum starfsmanni til starfa við innheimtu á fjármálasviði fyrirtækisins.

Á fjármálasviði starfar öflugt teymi sem hefur það hlutverk að skrá og greina viðskipti fyrirtækisins. Mikil samvinna er á sviðinu og skarast verkefni starfsfólks. Er því um fjölbreytt starf að ræða sem reynir á sveigjanleika í hugsun, aðlögunarhæfni að síbreytilegu umhverfi og jákvætt viðmót.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Innheimta viðskiptakrafna
  • Tekjuskráning
  • Þátttaka í umbótum og einföldun verkferla
  • Samskipti við viðskiptamenn, þjónustuaðila og aðrar deildir innan samstæðu
  • Þátttaka í öðrum verkefnum á fjármálasviði
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Krafa að hafa hafið háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Víðtæk þekking á excel (t.d. pivot töflum) er mikill kostur
  • Jákvætt viðhorf og góðir samskiptahæfileikar
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
  • Skipulagshæfni og samviskusemi í vinnubrögðum
Fríðindi í starfi
  • Hádegismatur
  • Styttri vinnuvika
  • Sveigjanlegur vinnutími
Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Suðurlandsbraut 34, 108 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar