Parlogis
Parlogis
Parlogis

Parlogis leitar að þjónustufulltrúa

Parlogis óskar eftir að ráða þjónustufulltrúa í þjónustuver. Í þjónustuveri starfar samheldin hópur sem sérhæfir sig í að þjónusta helstu viðskiptavini fyrirtækisins. Parlogis leggur áherslu á að viðskiptavinir upplifi framúrskarandi og áreiðanlega þjónustu í viðskiptum sínum við fyrirtækið

Helstu verkefni

  • Móttaka pantana.
  • Eftirfylgni pantana.
  • Úrlausn rafrænna fyrirspurna.
  • Símsvörun og upplýsingagjöf til viðskiptavina.

Hæfniskröfur

  • Framúrskarandi þjónustulund.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Almenn tölvuþekking og færni í notkun upplýsingakerfa.
  • Þekking á heilbrigðisgeiranum kostur.
  • Skipulagshæfni og nákvæmni í starfi.
  • Góð íslensku og ensku kunnátta.
  • Menntun sem nýtist í starfi.

Vinnutími er frá 08:00 - 16:00 mánudaga - fimmtudaga. 08:00 - 15:15 föstudaga

Parlogis er leiðandi þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í vörustjórnun fyrir lyfja-, heilbrigðis- og neytendavörugeirann á Íslandi. Hjá okkur starfa rúmlega 90 manns í góðu starfsumhverfi. Helstu viðskiptavinir eru sjúkrahús, apótek, heilsugæslur, læknar, skjólstæðingar sjúkratrygginga og dagvöruverslanir um allt land. Parlogis leggur metnað sinn í að vera fyrirmyndarvinnustaður þar sem lögð er áhersla á jafnrétti og fjölskylduvænt umhverfi.

Við erum heilsumiðaður vinnustaður og leggjum áherslu á að stuðla að góðri heilsu starfsmanna okkar. Það gerum við með því að bjóða upp á:

  • Hollan mat í hádeginu og hollt millimál
  • Reglulegir heilsufyrirlestra á vinnutíma
  • Sérkjör á heilsuvörum, vítamínum og íþróttafatnaði
  • Líkamsræktarstyrkir
  • Styrkir úr heilsusjóði Ósa sem hvetur til heilsueflingar starfsmannahópa

Umsóknafrestur er til og með 15 febrúar.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður María Reykdal, þjónustustjóri.

Auglýsing birt4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Krókháls 14, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar