
Rue de Net
Við erum Rue de Net hugbúnaðarhús og við sérhæfum okkur í Microsoft Business Central. Við bjóðum persónulega þjónustu og samanlagt búum við yfir mikilli reynslu við að aðstoða fyrirtæki að taka skrefið frá eldri lausnum og yfir í nútímann.
Við vitum að góð teymi skipta öllu máli í krefjandi verkefnum og að lykillinn að góðum árangri er menningin og stemmningin í vinnunni.
Lykillinn að árangri? Fólkið okkar!
Við vitum að gott fólk skapar góðan vinnustað og við trúum því að með því að byggja upp jákvætt og skapandi starfsumhverfi náum við bæði að styðja við fólkið okkar og veita viðskiptavinum okkar betri þjónustu.
Af hverju Rue de Net?
Við erum lifandi og skemmtilegur vinnustaður þar sem hvert verkefni er krefjandi en skemmtilegt. Hér leggjum við áherslu á að fólk fái að vaxa í starfi og sækja sér þá fræðslu og reynslu sem styrkir þau – bæði í vinnunni og persónulega. Starfsmannafélagið okkar, Tólfan, sér til þess að við höldum uppi góðu félagslífi með fjölbreyttum og skemmtilegum uppákomum.
Langar þig að starfa með okkur?
Við erum alltaf að leita að metnaðarfullum og drífandi einstaklingum sem vilja taka þátt í að þróa framsæknar lausnir og vörur – bæði fyrir viðskiptavini okkar og samstarfsaðila.
Sendu okkur endilega umsókn.

Bókari og skrifstofustjóri hjá Rue de Net – 50% starf, afleysing í eitt ár ! ☀️
Ertu þjónustulunduð/aður bókari sem langar að grípa tækifærið og prófa nýtt og skemmtilegt starfsumhverfi í eitt ár?
Við hjá Rue de Net, hugbúnaðarhúsi, leitum að bókara sem hefur líka gaman að því að láta hlutina gerast á skrifstofunni
Af hverju að starfa hjá Rue de Net?
Við leggjum okkur fram við að skapa góðan vinnustað
- Við erum eitt af fyrirmyndafyrirtækjum VR og leggjum okkur fram við að eiga ánægt starfsfólk
- Hjá okkur starfar fjölbreyttur hópur fólks á öllum aldri
- Góð leið til að verða enn betri í Business Central (BC) með því að vinna með sérfræðingunum sem eru alla daga að búa til lausnir og þjónusta BC
- Við bjóðum sveigjanlegan vinnutíma og gott andrúmsloft
- Við erum á besta stað í bænum – með flottasta útsýnið út á sjóinn þar sem stundum er hægt að sjá hvalina kíkja upp!
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bókhald í Business Central - Hjartað okkar slær í BC
- Umsjón með skrifstofunni okkar - innkaup, utanumhald og aðstoð við viðburði
- Að taka þátt í daglegu lífi á skrifstofunni og græja og gera það sem þarf
Menntunar- og hæfnisviðmið
Hverju erum við að leita eftir?
- Háskólapróf í viðskiptafræði eða sambærileg menntun / Viðurkenndur bókari
- Þjónustulund, góð samskiptahæfni og jákvæðni - að njóta þess að vinna með fólki
- Reynsla og þekkingu á bókhaldi
- Mikil kostur að hafa reynslu og þekking af Business Central
- Skipulagshæfni og frumkvæði eru kærkomin
Starfið er tímabundið, frá miðjum mars 2026 til maí 2027
Klár í næsta skref? Sendu okkur umsókn
Auglýsing birt5. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Bókari 50% starf
Signa ehf

Sérfræðingur á fjármálasviði
Intellecta

Bókari
Deluxe Iceland

Fjármála- og rekstrarsvið í ferðaþjónustufyrirtæki
Eskimos Iceland

Bókari
Skattur & bókhald

Bókari óskast
Volcano Trails

Sérfræðingur í bókhaldi og launavinnslu
Míla hf

Skrifstofustjóri
Datera ehf.

Starf í fjárhagsbókhaldi Landspítala
Landspítali

Bókari
Ljóstvistar ehf.

Bókari
Vínbúðin

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT Bókað ehf á Suðurlandi
ECIT