

Ertu reyndur bókari?
Deloitte leitar að öflugum og drífandi einstakling í spennandi og krefjandi starfs bókara í Bókhald og launadeild. Við bjóðum viðskiptavinum hérlendis og erlendis m.a. upp á sjálfvirknivæðingu á fjármálaferlum, bókhalds-, launa- og reikningshaldsþjónustu, rekstrargreiningu og aðra ráðgjöf á sviði fjármálaferla.
Hefðbundinn vinnudagur:
- Umsjón með fjárhagsbókhaldi og skýrslugerð til stjórnenda
- Vinna að tilfallandi verkefnum fyrir viðskiptavini
- Almenn skrifstofustörf
- Stuðningur við markaðssókn og fylgjast með spennandi tækifærum
- Þátttaka í gæðaferlum
Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi með brennandi áhuga á öllu sem við kemur bókhaldi, reikningshaldi og vilja til að þróast í starfi.
Þinn bakgrunnur, reynsla og hæfni:
- Reynsla af bókhaldi skilyrði
- Reynsla af DK skilyrði
- Reynsla af Business Central kostur
- Viðurkenndur bókari, kostur en ekki skilyrði
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni, jákvæðni og rík þjónustulund
Um teymið
Teymið samanstendur af fjölbreyttum hópi starfsmanna; framtíðar og núverandi reynsluboltum á ólíkum aldri og með alls konar áhugamál. Teymið vinnur náið saman og styður hvort annað til að þroskast og þróast í starfi. Svo höfum við auðvitað gaman af því að fagna saman stórum sem smáum áföngum.
Starfsþróun þín
Við trúum því að það sé ávallt rými til að læra en þú færð þjálfun og stuðning frá reyndum sérfræðingum í teyminu þínu. Við starfsupphaf færðu leiðbeinanda sem kemur þér inn í starfið og coach sem aðstoðar þig við að þróa þig áfram í starfi. Þú lærir mikið af þeim fjölbreyttu verkefnum sem þú tekur að þér hjá viðskiptavinum í ólíkum atvinnugeirum, þú fylgist vel með á þínu fagsviði og við að sama skapi styðjum við þinn vöxt með símenntunartækifærum.
Að auki bjóðum við upp á:
- Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat
- Regluleg frammistöðu samtöl
- Samstarfsfélaga „buddy“ sem kemur þér inn í starfið
- Styrk til verðandi foreldra
- Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
- Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
- Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks í höfuðstöðvum fyrirtækisins á Dalvegi
- Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið, t.d. hlaupahópar, golfklúbbur, fótbolti í hádeginu og leikjaherbergi svo eitthvað sé nefnt
Íslenska
Enska










