
Olís
Olís er eitt af 30 stærstu fyrirtækjum landsins og eru starfsmenn fyrirtækisins og dótturfélaga um 420.
Olíuverzlun Íslands hf. var stofnað 3. október 1927. Félagið hefur fylgt þeirri þróun sem átt hefur sér stað í íslensku atvinnulífi allt frá stofnun þess. Olíuverzlun Íslands er í dag þekktari undir nafninu Olís en starfsemi félagsins er skipt upp í þrjú meginsvið: Smásölu- og eldsneytissvið, heildsölu- og rekstrarvörusvið og fjármálasvið auk stoðsviða sem eru starfsmannasvið og markaðssvið. Félagið rekur fjölda þjónustustöðva undir vörumerki Olís ásamt sjálfsafgreiðslustöðvum undir vörumerki ÓB - ódýrt bensín.
Sviðsstjóri fyrirtækjasviðs
Olís leitar að öflugum og reynslumiklum stjórnanda til að stýra fyrirtækjasviði félagsins. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra Olís og situr viðkomandi stjórnandi í framkvæmdastjórn félagsins. Sviðsstjóri ber ábyrgð á sölu eldsneytis og vörum því tengdu til fyrirtækja ásamt innkaupum og rekstri sviðsins.
Um er að ræða krefjandi og áhrifamikið stjórnendastarf þar sem framundan er stefnumótun, rekstur og uppbygging sviðsins með skýra ábyrgð á afkomu, framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini, stafræna þróun verkferla o.fl.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mótun og innleiðing stefnu fyrirtækjasviðs í samræmi við heildarstefnu Olís.
- Ábyrgð á rekstri sviðsins, þ.m.t. fjárhagslegum árangri, markmiðum og áætlunum.
- Greining markaðstækifæra og eftirfylgni með þróun í rekstrarumhverfi fyrirtækjaviðskipta.
- Leiðtogahlutverk gagnvart teymi stjórnenda og sérfræðinga innan fyrirtækjasviðs.
- Uppbygging og viðhald langtíma viðskiptasambanda við lykilviðskiptavini um land allt.
- Stýring innkaupa og samskipta við innlenda og erlenda birgja.
- Tryggja framúrskarandi þjónustu, fagleg vinnubrögð og skilvirkan rekstur í samræmi við stefnu fyrirtækisins.
- Þróa nýjar lausnir í nánu samstarfi við aðrar deildir.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Víðtæk stjórnunarreynsla.
- Reynsla af starfi á fyrirtækjamarkaði (B2B) og samningagerð.
- Sterk greiningar- og skipulagshæfni ásamt góðum fjárhagslegum skilningi.
- Framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni.
- Frumkvæði, árangursdrifni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Reynsla á að byggja upp metnaðarfulla og árangursdrifna menningu.
- Reynsla af stefnumótun og innleiðingu breytinga.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Skútuvogur 5, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viðskiptastjóri - stafræn markaðssetning
Vistor

Vilt þú stýra sölu og þjónustu hjá Ljósleiðaranum?
Ljósleiðarinn

Sérfræðingur í opinberum innkaupum og samningsstjórnun
Umhverfis- og skipulagssvið

Sérfræðingur í áhættustýringu og kostnaðargreiningum
Umhverfis- og skipulagssvið

Svæðisstjóri Norðurlands
Hreint ehf

Sérfræðingur á fjármálasviði
Tryggingastofnun

Fjárhagsráðgjafi viðskiptakerfa
Advania

Við leitum að leiðtoga í hlutverk framkvæmdastjóra Distica.
Distica

Innheimtufulltrúi á fjármálasviði
Travel Connect

Greinandi hjá Skyggni Eignarhaldsfélagi
Origo ehf.

Viðskiptastjóri – Fyrirtækja- og fjárfestingarbankasvið
Íslandsbanki

Aðalbókari á fjármálasviði Origo
Origo ehf.