Advania
Advania
Advania

Fjárhagsráðgjafi viðskiptakerfa

Langar þig að vinna í öflugum hópi og með mörgum af helstu fyrirtækjum landsins?

Vegna aukinna verkefna leitum við að kraftmikilli, úrræðagóðri og metnaðarfullum einstakling í starf fjárhagsráðgjafa viðskiptakerfa. Við bjóðum uppá spennandi og gott vinnuumhverfi með fjölbreyttum verkefnum og tækifærum.

Starfssvið

Viðkomandi mun taka þátt í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að innleiðingu, ráðgjöf og rekstri á Dynamics 365 Finance & Operations.

Helstu verkefni

  • Ráðgjöf og þjónusta við viðskiptavini
  • Greining, hönnun og innleiðing ferla tengdum fjárhag, viðskiptavinum, lánadrottnum, eignakerfi og verkbókhaldi
  • Þátttaka í uppsetningu, prófunum og virkjun lausna hjá nýjum og núverandi viðskiptavinum
  • Samstarf við þróunarteymi, aðra ráðgjafa og hugbúnaðarsérfræðinga
  • Leita leiða til hagræðingar hjá viðskiptavinum með nýtingu á nýrri tækni eins og AI
  • Þjálfun og fræðsla fyrir notendur

Viðskiptalausnir

Innan Viðskiptalausna starfa yfir 140 sérfræðingar við verkefni tengd viðskiptakerfum og stafrænni umbreytingu íslenskra fyrirtækja. Við veitum framúrskarandi þjónustu sem er byggð á djúpri þekkingu á viðskiptakerfum og ferlum. Fjárhagsráðgjafi heyrir undir deildarstjóra ráðgjafar og þjónustu hjá Dynamics 365 F&O.

Starfið gæti hentað þér ef þú:

  • Hefur háskólamenntun á sviði viðskiptafræði, fjármála, tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða aðra menntun sem nýtist í starfi
  • Hefur góða þekkingu á reikningshaldi, bókhaldi eða af fjárhagssviði fyrirtækja
  • Hefur reynslu af þátttöku í innleiðingum viðskiptakerfa
  • Ert fær(t) í skipulagningu og forgangsröðun verkefna
  • Hefur góða samskiptafærni
  • Ert drífandi og árangursmiðuð/aður/að
  • Hefur reynslu af Dynamics 365 F&O eða öðrum viðskiptakerfum
  • Hefur áhuga á að læra nýja hluti og starfa í kviku umhverfi tækninýjunga
  • Hefur skilning á þörfum mismunandi atvinnugreina, viðskiptavina og notenda í tækni
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur23. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austursíða 6, 603 Akureyri
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar