Advania
Advania
Advania

Kerfisstjóri í notenda- og útstöðvaþjónustu

Við leitum að glaðlyndri, ábyrgri og áhugasamri manneskju í starf kerfisstjóra í notenda- og útstöðvaþjónustu Advania. Ef þú hefur brennandi áhuga á tækni kannt að vinna bæði sjálfstætt og í teymi, og ert með framúrskarandi þjónustulund, þá yrðir þú fullkomin viðbót í okkar frábæra hóp!

Um starfið

Kerfisstjóri sinnir fjölbreyttum verkefnum tengdum tæknilausnum fyrir viðskiptavini Advania. Starfið felur í sér bæði fjarvinnslu og reglulegar heimsóknir til viðskiptavina þar sem tæknileg mál eru leyst á staðnum. Verkefnin tengjast meðal annars skýjalausnum, útstöðvum, símalausnum og öðrum almennum upplýsingatæknivandamálum sem viðskiptavinir standa frammi fyrir.

Við leitum að einstaklingi sem

  • Er tæknilega sinnað/ur og fljót/t/ur að tileinka sér nýja hluti
  • Þrífst í umhverfi þar sem skilvirkni og sjálfstæði eru lykilatriði
  • Býr yfir góðri þekkingu á upplýsingatækni
  • Hefur vottun á sviði Microsoft – það er kostur, en ekki skilyrði

Hæfnikröfur

  • Framúrskarandi þjónustulund og vilji til að fara fram úr væntingum viðskiptavina
  • Reynsla og góð þekking á upplýsingatækni
  • Öguð vinnubrögð og geta til að vinna sjálfstætt
  • Reynsla af rekstri IT kerfa fyrirtækja er kostur
  • Góð þekking á Microsoft Windows stýrikerfinu, Microsoft 365 og öðrum algengum<br>notendahugbúnaði
  • Þekking á Active Directory og Microsoft Server kostur
  • Vottuð þekking á sviði ofangreindra Microsoft lausna er kostur

Við hvetjum öll kyn til að sækja um hjá okkur. Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar kröfur þá hvetjum við þig samt sem áður til þess að sækja um, þú gætir einmitt verið einstaklingurinn sem við leitum að

Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur17. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar