

Sérfræðingur eignastýringarkerfis
Viltu starfa í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi á Keflavíkurflugvelli? Við leitum að drífandi sérfræðingi sem hefur þekkingu og reynslu af innleiðingu, rekstri og utanumhaldi eignastýringakerfis. Viðkomandi mun starfa innan Eignastýringardeildar þar sem er öflugur hópur sérfræðinga hver með fagþekkingu á sínu ábyrgðarsviði.
Hlutverk sérfræðings eignastýringakerfis er að stuðla að hagkvæmum og skilvirkum rekstri eigna Keflavíkurflugvallar með því að leiða uppsetningu á eignastýringarkerfi ásamt því að veita notendum ráðgjöf og leiðbeiningar. Sérfræðingur ber ábyrgð á daglegum rekstri kerfisins sem og úrlausn þeirra vandamála sem upp koma við notkun þess. Sérfræðingur ber ábyrgð á því að réttar upplýsingar séu settar í kerfið og að kerfið sé nýtt til fullnustu fyrir hagkvæman rekstur þeirra fjölbreyttu eigna sem Eignastýring ber ábyrgð á.
Sérfræðingur mun vinna náið með stjórnendum og starfsmönnum eignastýringar og viðhaldsstjórnunar og stjórnendum innan og utan Isavia til að hámarka uppitíma, auka skilvirkni í rekstri og bæta notendaupplifun.
Helstu verkefni:
- Innleiðing, þróun og rekstur á eignastýringakerfi
- Veita sérfræðiþekkingu og leiðsögn við þróun á kerfinu sem og að þjónusta notendur kerfisins við úrlausn notendavandamála
- Vinna við bilanagreiningar, leiðréttingar og úttektir á kerfinu með því markmiði að hafa rétt gögn til taks hverju sinni.
- Þjálfun starfsmanna viðhaldsteyma, sérfræðinga, samhæfingarstjórnstöðvar og annars starfsfólks í rekstri við notkun á eignastýringakerfi
- Aðstoða ábyrgðaraðila eigna við þróun mælaborða, viðbragðsaðgerðir, breytingar á stillingum, þróunargreiningar, skýrslur o.s.frv.
- Gagnavinnsla, -greiningar og skýrslugerð með því markmiði að fá yfirsýn yfir lykilmælikvarða sem snúa að eignum
- Þátttaka í uppbyggingarverkefnum sem aðaltengiliður eignastýringakerfis við innleiðingar nýrra eigna í kerfið
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi, s.s tölvunarfræði, tæknifræði eða verkfræði
- Reynsla af hugbúnaðarrekstri er skilyrði
- Þekking á eignastýringarkerfum kostur (Computer Aided Facilities Management eða Asset Management Systems)
- Góð tækni og tölvukunnátta er skilyrði
- Geta og vilji til að bæta við sig þekkingu
- Góð ensku- og íslenskukunnátta í máli og riti er skilyrði
- Góð skipulags- og samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og jákvætt viðhorf
Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia.
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 18.febrúar 2026.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristín Erla Einarsdóttir, í gegnum netfang [email protected].
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Íslenska
Enska















