

Verkefnastjóri flugvallarinnviða
Viltu starfa í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi á Keflavíkurflugvelli? Við leitum að drífandi verkefnastjóra sem hefur þekkingu og reynslu af verkefnastjórn frá hönnunarstigi til framkvæmda, undirbúningi verkefna og áætlanagerð. Starfinu fylgja fjölbreyttar áskoranir í líflegu umhverfi og mun viðkomandi starfa í teymi Flugvallarinnviða innan Eignastýringardeildar þar sem er öflugur hópur sérfræðinga hver með fagþekkingu á sínu ábyrgðarsviði.
Flugvallarinnviðir bera ábyrgð á ástandi innviða flugvallarins. Eignamengi flugvallarinnviða eru flugbrautir, akbrautir, flughlöð og rafkerfi þeim tengdum, sem og ofanvatnskerfi, olíuskiljur og settjarnir.
Helstu verkefni:
- Rekstur og viðhald ofangreindra innviða
- Reglubundið eftirlit og greining á ástandi innviða og mat á viðhaldsþörf
- Verkefnastjórn á ýmsum stigum viðhaldsverkefna allt frá hönnun til framkvæmdar
- Innkaup og kostnaðareftirlit
- Þátttaka í gerð rekstrar-, viðhalds- og fjárfestingaáætlana
- Þátttaka og rýni í uppbyggingar- og framkvæmdaverkefnum
- Samskipti við innri og ytri hagaðila, hönnuði, verktaka og birgja
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi, t.d. tækni- eða verkfræðimenntun
- Reynsla af verkefnastjórnun og/eða stjórnun framkvæmda er skilyrði
- Reynsla af hönnun, viðhaldi eða lagningu slitlaga er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
- Reynsla af BIM/ACC er kostur
- Góð skipulags- og samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og jákvætt viðhorf
Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 18.febrúar 2026.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristín Erla Einarsdóttir, í gegnum netfang [email protected].
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Íslenska
Enska















