
Bláskógabyggð
Bláskógabyggð varð til sem sveitarfélag 9. júní 2002 við sameiningu þriggja sveitarfélaga, Biskupstungnahrepps, Laugardalshrepps og Þingvallahrepps. Nafn sveitarfélagsins er fengið úr Þingvallasveit og tengist birkinu og bláma vatnsins. Saga eldri sveitarfélaga verður ekki rakin hér enda spannar hún stóran hluta Íslandssögunnar.
Í Bláskógabyggð eru þrír þéttbýliskjarnar, Laugarás, Laugarvatn og Reykholt. Auk þess er blómleg byggð í dreifbýli sveitarfélagsins. Bláskógabyggð rekur tvo grunnskóla, Reykholtsskóla og Bláskógaskóla Laugarvatni og er sá síðarnefndi samrekinn leik- og grunnskóli. Einnig er leikskólinn Álfaborg í Reykholti. Á Laugarvatni rekur ríkið Menntaskólann að Laugarvatni, auk þess sem Háskóli Íslands hefur þar starfsemi.
Skrifstofur sveitarfélagsins eru í félagsheimilinu Aratungu í Reykholti. Áhaldahús er við Bjarkarbraut 2 í Reykholti. Bláskógabyggð rekur íþróttamiðstöðvar á Laugarvatni og í Reykholti þar sem eru sundlaugar, heitir pottar og íþróttahús með tækjasölum.
Helstu atvinnuvegir í Bláskógabyggð tengjast ferðaþjónustu og landbúnaði, þar á meðal garðyrkju, sem er umfangsmikil. Auk þess starfa margir við kennslu og aðra opinbera þjónustu. Í Bláskógabyggð er einnig að finna störf tengd verslun og þjónustu, svo og störf iðnaðarmanna og jarðvinnuverktaka, svo fátt eitt sé nefnt.
Fjölmargar náttúruperlur og sögustaði er að finna í Bláskógabyggð. Þekktastir þeirra eru Þingvellir, Geysir, Gullfoss, Haukadalur, Laugarvatn og Skálholt. Þingvallaþjóðgarður er einstakur staður vegna sögu og náttúru. Þar var Alþingi stofnað 930 og margir merkisviðburðir í sögu þjóðarinnar hafa átt sér stað á Þingvöllum í aldanna rás. Þingvellir voru samþykktir á náttúruminjaskrá Sameinuðu þjóðanna árið 2004. Í þjóðgarðinum má fræðast um sögu og náttúru staðarins.

Veitustjóri Bláskógaveitu
Bláskógaveita óskar eftir að ráða til sín öflugan einstakling í starf veitustjóra. Bláskógaveita annast rekstur og framkvæmdir við hita- og vatnsveitu Bláskógabyggðar. Veitan tilheyrir framkvæmda- og veitusviði og er hluti af mikilvægum innviðum sveitarfélagsins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegur rekstur, umsjón og viðhald veitukerfa
- Nýframkvæmdir við vatnsöflun, veitukerfi og mannvirki þeim tengd
- Verkstjórn og stýring verktaka við nýframkvæmdir, viðhald og viðgerðir
- Fjárhagsáætlanagerð með sviðsstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi, til dæmis í málmiðngreinum
- Reynsla og þekking á sviði veitna og framkvæmda
- Færni til að stjórna og leiðbeina
- Færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð almenn tölvukunnátta
- Þekking og reynsla af áætlanagerð, s.s. verk-, kostnaðar- og fjárhagsáætlanagerð
- Öku- og vinnuvélaréttindi
- Suðuréttindi kostur
Auglýsing birt2. febrúar 2026
Umsóknarfrestur16. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Félagsheimilið, Aratungu 806 Selfoss
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viltu beisla vindinn? Verkefnastjóri í þróun vindorku
Landsvirkjun

Forstöðumaður hönnunardeildar
Vegagerðin

Járn/málm iðnaðarmaður óskast - Steel worker
Stjörnustál

Ábyrgðaraðili verkskipulags
Orka náttúrunnar

Verkefnastjóri framkvæmda
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Verkefnastjóri á hönnunar- og framkvæmdadeild
Landspítali

Framkvæmdastjóri
Voltus

Sérfræðingur í veghönnun
Vegagerðin

Verkefnastjóri stafrænna kerfa
Landsnet hf.

Innkaupasérfræðingur - Fjármálasvið
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar
Landsnet hf.

Framleiðslutæknir / Aseptic Processing Technologist
Alvotech hf