Landsvirkjun
Landsvirkjun
Landsvirkjun

Viltu beisla vindinn? Verkefnastjóri í þróun vindorku

Við Íslendingar eigum lítt beislaða og endurnýjanlega auðlind í vindinum, sem gnægð er af hér á landi. Við hjá Landsvirkjun ætlum að gera þessa auðlind að þriðju stoðinni í orkuvinnslu fyrirtækisins, samhliða vatnsafli og jarðvarma, í takt við framtíðarsýn okkar um sjálfbæran heim, knúinn endurnýjanlegri orku.

Við leitum að verkefnastjóra í deild vindorku á sviði vinds og jarðvarma með þekkingu og áhuga á orkumálum. Í starfinu reynir mikið á samskipti við hagaðila því umhverfis- og skipulagsmál eru okkur hugleikin. Þú þarft því að hafa brennandi áhuga á mannlegum samskiptum, sýna frumkvæði og drifkraft, og hafa hæfni til að vinna sjálfstætt.

Við hverju má búast?

  • Að þróa og stýra nýjum verkefnum á sviði vindorku
  • Að bera ábyrgð á samskiptum við hagaðila og sjá um kynningar innan og utan Landsvirkjunar
  • Að greina og vinna úr gögnum um vindauðlindina
  • Að taka þátt í ýmsum vinnuhópum og veita almenna ráðgjöf innan fyrirtækisins

Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu sem nýtist í starfi?

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem verkfræði eða raungreinamenntun
  • Reynsla af verkefnastjórnun
  • Kostur að hafa reynslu af störfum tengdri vindorkunýtingu
  • Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfni, og metnað til að vaxa í starfi
  • Kostur að hafa þekkingu á skipulagsmálum og reynsla af samskiptum við hagaðila innanlands

Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?

Við leggjum ríka áherslu á fagmennsku, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Verkefnastjóri í þessu starfi hefur bein áhrif á orkuvinnslugetu framtíðarinnar og fær tækifæri til að hafa langtímaáhrif á mikilvæg mannvirki. Við styðjum við starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi þar sem jafnrétti, traust og samvinna eru í forgrunni.

Hljómar þetta spennandi?

Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og hvað kveikir áhuga þinn á starfinu. Fyrirspurnir má senda á netfangið [email protected].

Auglýsing birt2. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar