Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Verkefnastjóri fasteignareksturs og viðhalds

Viltu starfa í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi á Keflavíkurflugvelli? Við leitum að drífandi verkefnastjóra sem hefur þekkingu og reynslu af viðhaldi og rekstri fasteigna og tengdum innviðum s.s. viðhaldi bílastæða, göngustíga og vega. Starfinu fylgja fjölbreyttar áskoranir í líflegu umhverfi og mun viðkomandi starfa í teymi Fasteignarreksturs innan Eignastýringardeildar þar sem er öflugur hópur sérfræðinga hver með fagþekkingu á sínu ábyrgðarsviði.

Helstu verkefni:

  • Umsjón með rekstri og viðhald fasteigna, vega, bílastæða og göngustíga
  • Verkefnastjórn ýmissa viðhalds og breytingaverkefna
  • Greining á ástandi innviða og mat á viðhaldsþörf
  • Samskipti við verktaka, birgja, hönnuði og aðra innri- og ytri hagaðila
  • Innkaup og kostnaðareftirlit
  • Þátttaka í gerð rekstrar-, viðhalds- og fjárfestingaáætlana
  • Þátttaka og rýni í uppbyggingar- og framkvæmdaverkefnum
  • Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi s.s. byggingafræði, tækni- eða verkfræði á byggingasviði
  • Reynsla af rekstri, viðhaldi, hönnun eða uppbyggingu fasteigna er skilyrði
  • Reynsla af BIM/ACC er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð skipulags- og samskiptahæfni
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og jákvætt viðhorf

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 16.febrúar 2026.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristín Erla Einarsdóttir, í gegnum netfang [email protected].

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Auglýsing birt2. febrúar 2026
Umsóknarfrestur16. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar