

Sérfræðingur lagna- og loftræsikerfa
Viltu starfa í fjölbreyttu og krefjandi umhverfi á Keflavíkurflugvelli? Við leitum að drífandi sérfræðingi sem hefur góða þekkingu á lagna- og loftræsikerfum. Starfinu fylgja fjölbreyttar áskoranir í líflegu umhverfi og mun viðkomandi starfa innan deildar Eignastýringar þar sem starfar öflugur hópur sérfræðinga hver með fagþekkingu á sínu ábyrgðarsviði.
Helstu verkefni:
- Umsjón með rekstri og viðhaldi lagna- og loftræsikerfa innan flugstöðvar
- Greining á ástandi innviða og mat á viðhaldsþörf
- Samskipti við hönnuði, verktaka, birgja og aðra innri og ytri hagaðila
- Innkaup og kostnaðareftirlit
- Þátttaka í gerð rekstrar-, viðhalds- og fjárfestingaáætlana
- Þátttaka og rýni í uppbyggingar- og framkvæmdaverkefnum
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Tækni- eða verkfræðimenntun eða önnur menntun sem ásamt reynslu nýtist í starfi
- Reynsla af rekstri, viðhaldi eða hönnun lagna- og/eða loftræsikerfa
- Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli
- Góð tölvukunnátta
- Góð skipulags- og samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og jákvætt viðhorf
Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia.
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar, farsímaáskrift og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Umsóknarfrestur er til og með 18.febrúar 2026.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Kristín Erla Einarsdóttir, í gegnum netfang [email protected].
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.
Íslenska
Enska















