

Forstöðumaður upplýsingatækni
Íslensk fjárfesting leitar að öflugum aðila til þess að leiða upplýsingatæknimál samstæðunnar. Starfið felur í sér stefnumótun, forgangsröðun og framkvæmd upplýsingatæknimála í nánu samstarfi við stjórnendur. Um er að ræða nýtt og spennandi starf með fjölbreyttum verkefnum framundan. Forstöðumaður heyrir undir framkvæmdastjóra félagsins og tekur virkan þátt í framþróun félagsins og hefur það meginhlutverk að byggja upp málaflokkinn til framtíðar með áherslu á vaxtagetu og virðisaukandi lausnir.
Íslensk fjárfesting hefur markað sér þá stefnu að starfa á fjórum aðalsviðum: ferðaþjónustu, heilbrigðisþjónustu, fasteignum og útivist og hreyfingu. Hjá Íslenskri fjárfestingu starfar hópur fólk sem sinnir fjárfestingum, þróun verkefna, fjármálastjórnun, mannauðsstjórnun, lögfræði, framkvæmdastjórn og utanumhaldi. Hjá samstæðunni starfa yfir 1.000 manns á fjölbreyttum starfsstöðvum.
-
Móta og leiða stefnu upplýsingatækni og vera drifkraftur stafrænnar þróunar
-
Leiða og samræma ákvarðanir er varða málaflokkinn
-
Bera ábyrgð á upplýsingatækniöryggi, persónuvernd og þróa samræmda öryggisstefnu
-
Byggja upp innri hæfni og þekkingu á sviði upplýsingatækni innan samstæðunnar
-
Móta stefnu um gervigreind og innleiða hana í starfsemina
-
Stýra innleiðingu og þróun kjarnalausna, m.a. fjárhagskerfisins Business Central og mannauðskerfisins Kjarna
-
Halda utan um og samræma lausnir og þróun á vefsíðum
-
Tryggja faglega verkefnastjórn og innleiðingu nýrra kerfa og stafrænna lausna, m.a. samvinnulausna eins og Microsoft 365
-
Stýra vinnu við gagnauppbyggingu, viðskiptagreind og mótun gagnastefnu.
-
Samræma samskipti við lykilbirgja og þjónustusamninga
-
Leiða breytingastjórnun og fræðslu — styðja starfsfólk og stjórnendur við innleiðingu nýrrar tækni og vinnubragða
-
Halda utan um kostnað, áætlanir og fjárfestingar í upplýsingatækni
-
Haldbær reynsla af ábyrgðar - og stjórnunarhlutverki í upplýsingatækni
-
Viðeigandi menntun, t.d. í tölvunarfræði, kerfisstjórnun eða skyldum greinum eða mjög víðtæk reynsla sem nýtist í starfi.
-
Þekking og reynsla af upplýsingatækniverkefnum, verkefnastjórn, innleiðingu og breytingastjórnun
-
Góð þekking á rekstri fyrirtækjakerfa og Microsoft-umhverfis
-
Góð yfirsýn, sjálfstæði og skipulag, geta til að forgangsraða verkefnum og halda utan um samstarf í fjölbreyttu umhverfi
-
Þekking á upplýsingatækniöryggi, persónuvernd og regluverki
-
Góð greiningarhæfni og reynsla af kostnaðarstýringu og samningagerð
-
Reynsla af kostnaðargreiningu verkefna og mati á sparnaði vegna fjárfestinga í upplýsingatækni
-
Góð samskipta- og leiðtogahæfni, geta til að vinna sjálfstætt og skipulega og halda utan um flókið samstarf þvert á félög
-
Reynsla af að vinna náið með stjórnendum í fjölbreyttu umhverfi
-
Jákvætt og lausnamiðað hugarfar, frumkvæði og vilji til að móta nýtt starf og þróa málaflokkinn, og geta til þess að ganga í fjölbreytt verkefni
Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar næstkomandi.
Allar nánari upplýsingar um Íslenska fjárfestingu á www.ip.is
Upplýsingar um starfið veitir Eva Ýr Gunnlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs, [email protected]
Íslenska










