Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Forstöðumaður í Barnahúsi

Barna- og fjölskyldustofa leitar að framsæknum leiðtoga til að hafa forystu um starfsemi Barnahúss. Barnahús sinnir málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðisofbeldi, líkamlegu ofbeldi eða heimilisofbeldi. Barnahús hefur verið leiðandi í þjónustu við börn, þróun vandaðra vinnubragða og innleiðingu gagnreyndra aðferða. Leiðtogi Barnahúss þarf að hafa þekkingu á málefnum barna sem eru þolendur ofbeldis og afburða hæfni til að leiða starfsemina.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun og rekstur Barnahúss
  • Ábyrgð á þróun og framkvæmd á faglegu meðferðarstarfi
  • Ábyrgð á faglegum leiðbeiningum til sérfræðinga sem vinna með börnum sem og til almennings
  • Ábyrgð á meðferðar- og rannsóknarviðtölum við börn sem eru þolendur ofbeldis
  • Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi 
  • Kynningar og fræðsla um starfsemi Barnahúss
  • Skýrslu- og vottorðaskrif
  • Ráðgjöf við barnaverndarþjónustur og aðra samstarfsaðila vegna ofbeldisbrota
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á meistarastigi eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi er skilyrði
  • Þekking á sviði meðferðar barna, af vinnu með þolendum ofbeldis, vinnu með foreldrum og af barnaverndarstarfi er æskileg
  • Leiðtogahæfni og hæfni til að hvetja aðra til árangurs
  • Framúrskarandi samskiptafærni
  • Geta til að leiða og hafa umsjón með verkefnum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
  • Mjög góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg, önnur tungumálakunnátta er kostur.
Auglýsing birt4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur17. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar