Hvalfjarðarsveit
Hvalfjarðarsveit

Staða skólastjóra Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit laus til umsóknar

Hvalfjarðarsveit leitar að framfarasinnuðum, skapandi og farsælum leiðtoga til að stýra Heiðarskóla frá og með næsta skólaári.

Heiðarskóli er hluti af Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar þar sem skólastjórar bera ábyrgð hvor í sínum skóla ásamt því að viðhalda og þróa áfram öflugt samstarf milli skólanna í sameiginlegri skólastjórn.

Skólastjóri er fyrst og fremst faglegur leiðtogi sem fylkja þarf liði um stefnu skólans og árangursríka starfshætti. Leitað er að bjartsýnum, lausnamiðuðum og metnaðarfullum einstaklingi með árangursríkan starfsferil og áherslu á velferð og framfarir nemenda í góðu samstarfi við starfsfólk og foreldra. Skólastjóri stýrir og ber ábyrgð á daglegum rekstri, mannauðsmálum, annarri starfsemi skólans og að skólastarf sé í samræmi við lög og reglugerðir.

Heiðarskóli er í nýlegu skólahúsnæði við Leirá, nemendur hafa á undanförnum árum verið í kringum 90 og starfsfólk um 25. Skólinn leggur áherslu á fjölbreytta kennsluhætti í anda leiðsagnarnáms og unnið er samkvæmt hugmyndafræði um teymi og teymiskennslu. Stigum er skipt upp í teymi starfsfólks sem ber sameignlega ábyrgð á námi, kennslu og velferð hvers nemendahóps. Unnið er eftir uppbyggingarstefnu með áherslu á læsi og umhverfismennt. Aðstaða skólans er öll hin besta og skólinn vel tækjum búinn. Markmið skólans er að verða í fremstu röð með framfarir að leiðarljósi og fagmennsku í fyrirrúmi og að börn njóti skólagöngu sinnar og öðlist með menntun sinni og uppeldi, styrk og hæfni til að nýta þau tækifæri sem samfélag framtíðarinnar býður upp á.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri
• Fagleg forysta í skólastarfi.
• Virk þátttaka í þróun, eflingu og skipulagi skólastarfs.
• Samstarf við sveitarstjórn og aðila skólasamfélagsins

Menntunar- og hæfniskröfur

• Kennaramenntun og leyfisbréf grunnskólakennara er skilyrði
• Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun og nýjungum í skólastarfi er skilyrði
• Þekking og reynsla af rekstri og stjórnun er æskileg.
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og kennslufræða er æskileg
• Sérstök áhersla er lögð á að viðkomandi búi yfir lipurð í samstarfi, sveigjanleika og hæfni í      mannlegum samskiptum.
• Góðir skipulagshæfileikar og frumkvæði er kostur.
• Gerð er krafa um vammleysi s.s að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.

Auglýsing birt15. janúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Heiðarskóli 221406 , 301 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar