
Dineout ehf.
Dineout ehf. er leiðandi hugbúnaðarhús með áherslur á lausnir fyrir veitingastaði, hótel og annan rekstur. Fyrirtækið var stofnað árið 2017 og hefur verið í miklum vexti síðan. Það samanstendur af þverfaglegu teymi forritara, verkfræðinga og sérfræðinga með mikla reynslu og þekkingu af daglegum rekstri veitingastaða.

Deildarstjóri sölusviðs
Dineout ehf. óskar eftir metnaðarfullum og drífandi deildarstjóra sölusviðs til að leiða og þróa sölu félagsins. Um er að ræða lykilstöðu í vaxandi hugbúnaðarfyrirtæki þar sem viðkomandi hefur veruleg áhrif á tekjuvöxt, ferla og árangur sölustarfs.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun og þróun sölusviðs fyrirtækisins
- Ábyrgð á sölumarkmiðum, söluáætlunum og árangri
- Virk þátttaka í sölu, m.a. öflun nýrra viðskiptavina og uppbygging langtímasambanda
- Gagnadrifin nálgun við sölu, greining árangurs og nýting gagna til ákvarðanatöku
- Samningagerð og eftirfylgni með lykilviðskiptavinum
- Samstarf við stjórnendur, vöruþróun og aðrar lykildeildir
- Þátttaka í mótun verkferla og innleiðingu sölukerfa
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu á hugbúnaði
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af stjórnun sölustarfs eða söluteyma æskileg
- Sterk sölu- og gagnadrifin nálgun og vilji til að ná mælanlegum árangri
- Góð reynsla af samningagerð og viðskiptasamskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð nálgun
- Góð samskiptafærni á íslensku og ensku, í ræðu og riti
Auglýsing birt4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðDrifkrafturFrumkvæðiHönnun ferlaMannleg samskiptiSamningagerðSjálfstæð vinnubrögðSölumennskaTeymisvinnaVerkefnastjórnunViðskiptasambönd
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Sölustjóri – Advise ehf
Advise Business Monitor

Eftirminnilegt sumar í vændum?
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Forstöðumaður í Barnahúsi
Barna- og fjölskyldustofa

Hlutastarfsmaður um helgar í Augað gleraugnaverslun Kringlunni
Augað gleraugnaverslun

Forstöðumaður sölu og viðskiptastýringar á fyrirtækjasviði Símans
Síminn

Viðskiptastjóri lykilviðskiptavina á fyrirtækjasviði
Síminn

Helgar- og hlutastarf í verslun
BAUHAUS slhf.

Vilt þú stýra sölu og þjónustu hjá Ljósleiðaranum?
Ljósleiðarinn

Egilsstaðir: Söluráðgjafi í verslun
Húsasmiðjan

Löggiltur fasteignasali og nemi í löggildingarnámi.
Trausti fasteignasala ehf.

Sölufulltrúi
GreenFish

Sölumaður á fyrirtækjasviði
SS - Sláturfélag Suðurlands