Advise Business Monitor
Advise Business Monitor
Advise Business Monitor

Sölustjóri – Advise ehf

Advise er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki í vexti og með háleit markmið. Við leitum að drífandi og sjálfstæðum sölustjóra sem tekur ábyrgð á sölu, uppbyggingu sölupípu og árangursmælingum.

Þetta er sjálfstæð staða þar sem þú sinnir bæði sölustarfi og reglulegri skýrslugerð/greiningum: finnur tækifæri, kynnir lausnina, lokar samningum og heldur utan um CRM, sölupípu og spár.

Helstu verkefni

  • Byggja upp og stýra sölupípu frá fyrstu snertingu
  • Finna og sækja ný tækifæri og vinna markvisst með lykilviðskiptavini

  • Greina þarfir viðskiptavina og leiða söluferlið áfram

  • Halda vörukynningar og setja upp viðskiptafundi við líklega viðskiptavini

  • Byggja upp og viðhalda góðum samskiptum við stjórnendur og lykilaðila

  • Halda CRM snyrtilegu og skrá samskipti og næstu skref

  • Skila skýrslum um sölupípu, söluspár og helstu mælikvarða

Hæfniskröfur

  • Reynslu af B2B sölu, helst í hugbúnaði/SaaS

  • Sjálfstæði, gott skipulag og sterkan drifkraft

  • Góða samskiptahæfni og reynslu af samningum og framsetningu

  • Góðan skilning á gögnum og mælikvörðum

  • Þekkir vel rekstur fyrirtækja og þarfir þeirra í fjármálagreiningu

  • Reynslu af CRM og skýrslugerð (HubSpot er kostur)

  • Mjög góða íslensku og ensku

Um Advise

Advise er íslensk hugbúnaðarlausn á sviði viðskiptagreindar, sniðin að þörfum stjórnenda og annarra hagsmunaaðila fyrirtækja. Lausnin veitir skýra innsýn í rekstur, eykur aðhald og styður gagnadrifna ákvarðanatöku.

Meðal hluthafa Advise er Origo. Við vinnum stöðugt að framþróun lausnarinnar og stefnum á erlenda markaði á næstu mánuðum.

Umsókn

Sendu inn ferilskrá og stutta kynningu. Umsóknum verður svarað jafnóðum og farið er með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur20. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hlíðasmári 6, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar