

Fjölbreytt starf í sjóðastýringarfélagi
Viska sjóðir er rekstraraðili sérhæfðra sjóða og rekur tvo sjóði með ólíkar fjárfestingaáherslur. Annar sjóðurinn er með áherslu á rafmyntir, en hinn á fjárfestingar í erlendum hlutabréfum sem tengjast meðal annars innviðum gervigreindar og hrávörum.
Viska sjóðir leita að metnaðarfullum og fjölhæfum starfsmanni í fullt starf til að ganga til liðs við teymi félagsins. Starfið er fjölbreytt og snýr bæði að daglegum rekstri sjóða, greiningarvinnu og þróun nýrra lausna innan sjóðastýringar, þar á meðal markvissri nýtingu gervigreindar.
Nánari upplýsingar um Visku sjóði má finna á heimasíðu félagsins: www.viskasjodir.is
• Greining á mörkuðum, eignaflokkum og einstökum fjárfestingatækifærum
• Bakvinnsla og umsýsla sjóða, þar á meðal gagnavinnsla og samskipti við þjónustuaðila
• Aðstoð við undirbúning efnis fyrir sjóðfélaga, skýrslur, greinaskrif og innri greiningar
• Aðkoma að þróun og innleiðingu lausna sem nýta gervigreind og sjálfvirkni til að bæta ferla, ákvarðanatöku og rekstur félagsins
• Ýmis önnur tilfallandi verkefni í vaxandi sjóðastýringarfélagi
• Háskólamenntun í fjármálum, hagfræði, verkfræði, stærðfræði eða tengdum greinum (kostur, en ekki skilyrði)
• Reynsla af störfum á fjármálamarkaði er kostur
• Greiningarhæfni og færni í að vinna með töluleg gögn
• Brennandi áhugi á fjármálamörkuðum og fjárfestingum, þar á meðal rafmyntum
• Góð samskiptahæfni
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
• Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni
Enska
Íslenska










