Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Verkefnastjóri Samgangna og fasteigna

Við leitum eftir drífandi og skipulagðri manneskju til að stýra fjölbreyttum og spennandi verkefnum innan tekjueiningar Isavia. Viðkomandi kemur til með að bera ábyrgð á að skilgreina verkefni, skipuleggja og fylgja þeim eftir yfir líftíma þess.

Í starfinu þarf að eiga samskipti við hagaðila, bæði innan og utan fyrirtækisins í tengslum við verkefni, ásamt því að koma að mótun ferla, sinna úrbótaverkefnum og sjá um utanumhald á verkefnum. Viðkomandi mun tilheyra teymi sem ber ábyrgð að hámarka tekjur og vörur fyrirtækisins sem deildin annast, ásamt að koma að þróun nýrra viðskiptatækifæra.

Hvetjum alla sem vilja takast á við spennandi verkefni í lifandi umhverfi, með fjölbreyttum kröfum og möguleikum til að sækja um.

Helstu verkefni:

  • Undirbúningur og skipulagning verkefna, s.s. greiningar og tímaáætlanir

  • Utanumhald og eftirlit með framvindu verkefna

  • Samskipti við hagsmunaaðila innan sem utan fyrirtækisins

  • Gerð útboðsgagna

  • Þátttaka í verkefnateymi við hönnun og undirbúning nýframkvæmda

  • Vöruþróun og hámörkun tækifæra í samstarfi við aðra starfsmenn deildarinnar í gegnum útboð eða aðrar leiðir

  • Miðlun þekkingar á aðferðafræði verkefnastjórnunar

  • Önnur verkefni samkvæmt næsta stjórnenda

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Menntun eða vottun á sviði verkefnastjórnunar

  • Hæfni til að greina gögn og upplýsingar

  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Góð samskiptafærni, þjónustudrifið og lausnamiðað hugarfar 

  • Hæfni og geta til að vinna í teymi

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri

  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku 

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og Hafnarfirði.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.

Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2024.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Torfi Ólafsson deildarstjóri í netfang [email protected]

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Auglýsing birt6. ágúst 2024
Umsóknarfrestur25. ágúst 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Dalshraun 3, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar