
Umhverfis- og skipulagssvið
Á Umhverfis og skipulagssviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem eiga að auðga mannlífið í borginni.
Nánar má lesa um sviðið hér: https://reykjavik.is/umhverfis-og-skipulagssvid
Starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs býr yfir einstakri fagþekkingu í þeim málaflokkum sem sviðið sinnir og gegnir lykilhlutverki í því að gera Reykjavík að enn betri borg. Leiðarljós sviðsins eru aukin lífsgæði í Reykjavík með framúrskarandi þjónustu og metnaði fyrir enn betri borg.

Verkefnastjóri á skrifstofu framkvæmda og viðhalds
Skrifstofa framkvæmda og viðhalds leitar að réttu manneskjunni í starf verkefnastjóra á deild gatna, lóða og opinna svæða. Deildin sér um áætlanagerð, hönnun, útboð, framkvæmd og eftirlit með stofnframkvæmdum og viðhaldsframkvæmdum samgöngumannvirkja, skóla- og leikskólalóða og opinna svæða.
Verkefnin krefjast mikillar þverfaglegrar samvinnu bæði innan fagsviða Reykjavíkurborgar sem og annarra hagsmunaaðila.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastjórn, skipulagning og stjórnun verkefna.
- Gerð kostnaðar- og framkvæmdaáætlana, ásamt eftirfylgni framkvæmda.
- Ábyrgð á úttektum, uppgjöri og gerð skilamats vegna framkvæmda.
- Eftirlit útboðsverka.
- Samskipti/samráð við íbúa, hagsmunaðila, ráðgjafa, stofnanir, nefndir og ráð, skrifstofur og deildir innan og utan borgarkerfis um framkvæmdir einstakra verkefna.
- Skráning verkefna í verkbókhald.
- Setja upplýsingar um verkefni í Framkvæmdasjá sem er opin almenningi til að miðla upplýsingum til íbúa og hagsmunaaðila. Reglubundin uppfærsla á stöðu verkefna í Framkvæmdasjá.
- Fylgist með að samþykktar forsendur fyrir framkvæmdum liggi fyrir svo sem aðal- og deiliskipulag, umhverfismat, samþykktir nefnda og ráða og almennar leyfisveitingar t.d. framkvæmdaleyfi, byggingaleyfi, heimild frá lögreglu o.þ.h.
- Fylgir eftir tímaramma framkvæmda, að þær hefjist á réttum tíma, gangi eðlilega fyrir sig og sé lokið samkvæmt tímaáætlun.
- Upplýsingamiðlun innan og utan borgarkerfisins.
- Vinna við hönnun, val á búnaði eins og við á, fyrir stofnanir og/eða opin leiksvæði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun á sviði umhverfisfræða, byggingarfræði, arkitektúr, landslagsarkitektúr eða skipulagsfræðum. Framhaldsmenntun tengd málaflokki.
- Haldbær reynsla af starfssviðinu kostur.
- Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
- Lausnamiðuð hugsun, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
- Samskiptahæfni sem miðar að því að starfa í hóp og verkefnateymum vegna umfangsmikilla skipulagsverkefna.
- Hæfni til framsetningar og greiningar á flóknum gögnum og miðlun upplýsinga í ræðu og riti.
- Góð almenn tölvukunnátta og þekking á algengum skrifstofu-, hönnunar- og teikniforritum.
- Íslenskukunnátta B2-C1 í samræmi við samevrópska tungumálarammann og enskukunnátta C1.
Auglýsing birt30. janúar 2025
Umsóknarfrestur17. febrúar 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSkipulagTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í opinberum innkaupum
FSRE

Verkefnastjóri hjá FSRE
FSRE

Verkefnastjóri Byggingarframkvæmda
E. Sigurðsson

Ljósvistarhönnuður
Liska ehf.

Verkefnastjóri umhverfis og garðyrkju
Seltjarnarnesbær

Sviðsstjóri samgöngu- og skipulagssviðs
VSB verkfræðistofa

Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Fjarðabyggð

Verkefnastjóri í sjálfbærni
HS Orka

Þjónustu og Verkefnastjóri í MICE
HL Adventure

Byggingarfulltrúi
Akraneskaupstaður

Sérfræðingur á sviði mannvirkjagerðar
Landhelgisgæsla Íslands

Deildarstjóri eignadeildar
Kópavogsbær