VIRK Starfendurhæfingarsjóður
VIRK Starfendurhæfingarsjóður

Sérfræðingur á Úrræða og þjónustusviði

VIRK leitar að þjónustu- og lausnamiðuðum sérfræðingi til starfa á Úrræða- og þjónustusviði VIRK. Sérfræðingurinn er í miklum samskiptum við þjónustuaðila um allt land vegna úrræða og styður við ráðgjafa og sérfræðinga VIRK varðandi úrræðakaup. Starfið felur í sér umtalsverða úrvinnslu upplýsinga, þátttöku í þróun nýrra úrræða og ákvörðunartöku varðandi framsetningu á þeim.

Um er að ræða krefjandi, fjölbreytt en jafnframt gefandi starf og einstakt tækifæri til þátttöku í þróun og þjónustu á sviði starfsendurhæfingar. Um fullt starf er að ræða. Skilyrði er góð kunnátta í íslensku. Starfsstöð er í Reykjavík. Æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

Umsjón og eftirlit með úrræðum og þjónustuaðilum

Samskipti og þjónusta við fjölbreyttan hóp innan og utan VIRK

Samstarf við þverfagleg teymi og öflun og miðlun upplýsinga

Úrvinnsla upplýsinga og framsetning gagna

Svörun fyrirspurna og skráningarvinna í upplýsingakerfi VIRK

Umbóta- og þróunarstarf 

Stafræn miðlun á efni

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólamenntun sem nýtist í starfi

Frumkvæði og metnaður til að ná árangri

Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund

Sveigjanleiki, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni

Rík kostnaðarvitund

Góð tölvu- og tækniþekking

Þekking á verkefnastjórnun er kostur

Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti

Hreint sakavottorð

Auglýsing birt29. janúar 2025
Umsóknarfrestur9. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 18, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar