Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Verkefnastjóri kjaramála

Ertu kjaraklár?

Hefur þú reynslu og metnað í kjaramálum og þekkir til helstu kjarasamninga?

Við leitum að reynslumiklum orkubolta í mannauðsteymið okkar sem hefur ástríðu fyrir umbótum og framþróun. Ef þetta hljómar eins og draumastarfið, þá eigum við mjög líklega samleið!

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Samskipti og samvinna við stjórnendur, starfsfólk, stéttarfélög og aðra hagsmunaaðila
  • Eftirfylgni með breytingum á kjarasamningum
  • Launasetning og ráðgjöf til stjórnenda um kjaratengd mál
  • Samvinna með launafulltrúa
  • Greining og þróun launastefnu í samvinnu við stjórnendur og starfsfólk
  • Jafnlaunavottun og launagreiningar
  • Mælingar og úttektir á kjaramálum og umbætur byggðar á niðurstöðum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi eða sambærileg reynsla
  • Reynsla af kjaramálum eða tengdum verkefnum, t.d. samningagerð eða launamálum, er kostur
  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í vinnubrögðum og lausnamiðuð nálgun
  • Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að vinna með ólíkum hópum
  • Góð tölvukunnátta, sérstaklega í Excel og öðrum tólum sem nýtast í greiningarvinnu
  • Þekking á H3 og My Time Plan eða sambærilegum kerfum er kostur
  • Þekking á samningum um Betri vinnutíma er kostur
Auglýsing birt30. janúar 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar