Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið
Umhverfis- og skipulagssvið

Deildarstjóri nýbygginga

Skrifstofa framkvæmda og viðhalds annast stofnframkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar og sér um viðhald á eignasafni. Deild nýbygginga gerir frumathugun, þarfagreiningu og forhönnun á verkefnum áður en endanleg ákvörðun um framkvæmd er tekin. Deildarstjóri er ábyrgur fyrir stjórnun og daglegum rekstri deildar, tryggir að verkefni séu í samræmi við stefnu og markmið Reykjavíkurborgar og stuðlar að sjálfbærni og nýsköpun.

Við leitum að leiðtoga með ríka samskipta- og stjórnunarhæfileika, frumkvæði og þekkingu til að leiða stór verkefni og færni til að leita lausna í samráði við hagaðila. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í faglegu starfsumhverfi þar sem áhersla er á þverfaglega teymisvinnu, góða þjónustu og virðingu fyrir umhverfinu. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýrir deild nýbygginga og er næsti yfirmaður verkefnisstjóra sem þar starfa.
  • Fagleg stjórnun mannauðs, fjármála, skipulags og daglegra verkefna sem heyra undir deildina.
  • Leiðir áætlanagerð, skipulagningu og markmiðasetningu deildarinnar og tryggir að unnið sé í samræmi við stefnu, áherslur og markmið umhverfis- og skipulagssviðs.
  • Umsjón með hönnunarsamkeppnum sem falla undir verkefni deildarinnar
  • Samskipti og samráð við íbúa, hagsmunaaðila, ráðgjafa og stofnanir, nefndir og ráð, skrifstofur og deildir innan og utan borgarkerfis.
  • Samningagerð og rýni við gerð útboðsgagna, kostnaðargát og yfirumsjón með forgangsröðun verkefna og samræmingu innan deildar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á sviði arkitektúrs eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun í fagi er áskilin.
  • Viðbótamenntun á sviði stjórnunar, verkefnastjórnunar og/eða opinberrar stjórnsýslu er kostur.
  • Víðtæk reynsla af sambærilegu starfssviði.
  • Mjög góðir hæfileikar til samskipta og samvinnu.
  • Hæfni til að skapa öfluga liðsheild.
  • Greiningar- og skipulagshæfni, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun.
  • Reynsla af stjórnun kostur.
  • Reynsla af áætlanagerð kostur.
  • Þekking á skipulags- og byggingarlögum og viðkomandi reglugerðum.
  • Íslenskukunnátta C1-C2 skv. samevrópskum tungumálaramma og enskukunnátta B1-B2.
Auglýsing birt24. janúar 2025
Umsóknarfrestur10. febrúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Starfsmannahald
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar