Landsvirkjun
Við hjá Landsvirkjun vinnum rafmagn úr endurnýjanlegum orkugjöfum og rekum 15 vatnsaflsstöðvar, þrjár jarðvarmastöðvar og tvær vindmyllur í rannsóknaskyni, á fimm starfssvæðum víðs vegar um land. Höfuðstöðvar okkar eru í Reykjavík.
Við leggjum áherslu á að byggja upp metnaðarfullt starfsumhverfi sem nærir öfluga liðsheild, árangur og hvetjandi starfsanda.
Við tryggjum starfsfólki góðan aðbúnað og sveigjanleika til að einfalda og auðvelda heilbrigða samþættingu vinnu og einkalífs. Stöðugt er hlúð að vellíðan og farsæld starfsfólks og unnið með heilsutengdar forvarnir, öryggi og vinnuvernd.
Við fögnum fjölbreytileikanum og leggjum áherslu á jafnrétti í öllum okkar störfum.
Verkefnastjórar í framkvæmdum
Nú er verk að vinna!
Það er nóg að gera hjá okkur í Landsvirkjun núna og næstu misseri, enda höfum við það þjóðhagslega mikilvæga verkefni að mæta aukinni aflþörf samfélagsins vegna orkuskipta og atvinnustarfsemi. Mörg áhugaverð og krefjandi verkefni eru í undirbúningi, bæði nýframkvæmdir og endurbætur á núverandi orkumannvirkjum.
Við leitum að verkefnastjórum, einkum til að leiða jarðtæknileg verkefni við gerð og viðhald stífla, ganga og skurða sem og annarra mannvirkja. Störfin eru i nýframkvæmdadeild og endurbótadeild.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði byggingar- eða jarðverkfræði, jarðvísinda eða tæknifræði
- Reynsla og þekking á stórum jarðtæknilegum verkefnum
- Reynsla af verkefna- eða teymisstýringu framkvæmda
- Drifkraftur, umbótavilji og samskiptahæfni
Auglýsing birt6. september 2024
Umsóknarfrestur22. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaFramúrskarandi
EnskaMjög góð
Staðsetning
Katrínartún 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiMetnaður
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)
Verkefnastjóri á framkvæmdadeild
Vegagerðin
Sérfræðingur í BREEAM fyrir nýframkvæmdir
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Hraunmeistari | Lava Master - Vík í Mýrdal
Lava Show
Verkfræðingur
Strendingur ehf.
Netsérfræðingur
Míla hf
Planari
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Operation and Maintenance Engineer
Carbfix
Verkefnastjóri í upplýsingatækni
Landsnet hf.
Framleiðslustjóri
Signa ehf
Forritari í tryggingalausnum á upplýsingatæknisviði
Arion banki
Aðstoðarrekstrarstjóri
Dropp
Vef-forritarar á upplýsingatæknisviði
Arion banki