Sérfræðingur í BREEAM fyrir nýframkvæmdir
Verkfræðideild Isavia leitar að metnaðarfullum og reyndum sérfræðingi til að sjá um og hafa umsjón með BREEAM vottunarferli fyrir nýframkvæmdir okkar. Starfið felur í sér að þróa verklag og kröfur til kerfa í samvinnu við aðrar deildir Isavia og er því mikilvægt að hafa afburðar samskiptahæfileika og yfirgripsmikla þekkingu á lögnum og loftræsingu. Auk þess að taka þátt í nýjungum til orkusparnaðar og sjálfbærni.
Ef þú hefur áhuga á umhverfisvænni uppbyggingu, sjálfbærni og vilt taka þátt í að móta framtíð Keflavíkurflugvallar, þá gæti þetta verið rétta tækifærið fyrir þig.
Lykillinn að þeim árangri sem náðst hefur í þeirri gríðarlegu uppbyggingu sem hefur átt sér stað á Keflavíkurflugvelli undanfarin ár eru fagleg vinnubrögð, teymishugsun og frumkvæði.
Hlutverk og ábyrgð:
-
Yfirumsjón með BREEAM vottunarferli fyrir nýbyggingar
-
Vinna náið með hönnunar- og framkvæmdateymum til að tryggja að byggingarferli uppfylli kröfur BREEAM
-
Meta og skjalfesta sjálfbærniáætlanir verkefna til að tryggja að þau uppfylli staðla
-
Ráðgjöf um bestu sjálfbærni lausnir í samræmi við BREEAM staðla
-
Umsjón með samskiptum við vottunaraðila og aðra hagsmunaaðila
Hæfni og menntunarkröfur:
-
Menntun á sviði byggingarverkfræði- tæknifræði, umhverfisverkfræði eða skyldum greinum
-
Reynsla af BREEAM framkvæmdaverkefnum er skilyrði
-
Reynsla af vinnu við BREEAM vottunarferli er mikill kostur
-
Þekking á sjálfbærni og umhverfisvottunarkerfum í byggingariðnaði
-
Góð samskipta- og skipulagshæfni
-
Færni í að vinna sjálfstætt og innan hóps
Við bjóðum:
-
Krefjandi og spennandi verkefni á sviði sjálfbærrar uppbyggingar
-
Tækifæri til að móta sjálfbæra framtíð í byggingariðnaði
-
Hollan og góðan mat í mötuneyti
-
Allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu
-
Starf í framsæknu og metnaðarfullu vinnuumhverfi
Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingimundur Jónsson deildarstjóri í netfangið ingimundur.jonsson@isavia.is
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.