

Umsjónarkennari á yngsta stigi
Auglýst er staða umsjónarkennara á yngstastigi í 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2025. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum grunnskólakennara sem vill kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf.
Í Sunnulækjarskóla mynda kennarar og aðrir fagaðilar árgangs árgangateymi. Árgangateymin framkvæma og stjórna daglegu skólastarfi tiltekinna árganga eða námshópa í samvinnu við sína deildarstjóra. Góð teymisvinna er liður í að byggja upp sterkt lærdómssamfélag í skólanum.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
-
Annast kennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda
-
Umsjón með daglegu skólastarfi er varðar viðkomandi umsjónarhóp
-
Er tengiliður umsjónarhóps innan skólans og við foreldra/forráðamenn
-
Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar
-
Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins
-
Leyfisbréf grunnskólakennara
-
Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
-
Hæfni og áhugi á skólastarfi
-
Góð færni í mannlegum samskiptum
-
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
-
Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur



















