Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi

Sérkennari á unglingastigi

Auglýst er staða sérkennara á unglingastigi í 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2025. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum sérkennara sem vill kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu, tækni og skapandi skólastarf.

Í Sunnulækjarskóla mynda kennarar og aðrir fagaðilar árgangs árgangateymi. Árgangateymin framkvæma og stjórna daglegu skólastarfi tiltekinna árganga eða námshópa í samvinnu við sína deildarstjóra. Góð teymisvinna er liður í að byggja upp sterkt lærdómssamfélag í skólanum.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast sérkennslu samkvæmt megin markmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda 
  • Umsjón með daglegu skólastarfi í samstarfi við árgangateymi 
  • Er tengiliður einstaka nemenda innan skólans og við foreldra/forráðamenn 
  • Fylgist með velferð nemenda, hlúir að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þeir fái notið sín sem einstaklingar 
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf grunnskólakennara 

  • Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð  

  • Hæfni og áhugi á skólastarfi 

  • Góð færni í mannlegum samskiptum   

  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku 

  • Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur 

Auglýsing birt26. mars 2025
Umsóknarfrestur9. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Norðurhólar 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar