Klettaskóli
Klettaskóli

Aðstoðarskólastjóri óskast í Klettaskóla

Klettaskóli er sérskóli fyrir nemendur á aldrinum 6-16 ára með þroskahömlun og viðbótarfatlanir og þjónar öllu landinu. Eitt af hlutverkum skólans er að veita starfsfólki annarra grunnskóla ráðgjöf og kennslufræðilegan stuðning vegna nemenda sem hafa svipaðar námsþarfir og nemendur í Klettaskóla. Nám í Klettaskóla er einstaklingsmiðað og byggt á forsendum og styrkleikum hvers nemanda. Einkunnarorð skólans eru "Menntun fyrir lífið". Í skólanum starfar samhent stjórnendateymi þar sem lögð er áhersla á gagnkvæmt traust, metnað og framsækni fyrir hönd nemenda og starfsfólks skólans. Aðstoðarskólastjóri er staðgengill skólastjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er faglegur leiðtogi og kemur að vinnu við skólanámskrá, stefnum og starfsáætlun skólans, ásamt mati á skólastarfi í samstarfi við stjórnendateymi  og skólasamfélagið.

·         Ber ábyrgð, ásamt öðrum stjórnendum, á rekstri skólans og daglegri starfsemi.

  • Er virkur þátttakandi í þróunar- og nýbreytnistarfi skólans ásamt því að halda utan um ákveðna starfshópa skólans.
  • Heldur utan um starfsmannamál s.s. forföll og leyfisóskir, ráðningaferli og móttöku nýrra starfsmanna í samstarfi við stjórnendateymi.
  • Er í samstarfi við foreldra, fagaðila og þjónustustofnanir.
  • Kemur að innleiðingu nýrra verkefna og nýjunga í skólastarfinu í samvinnu við stjórnendateymi skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennsluréttindi og kennslureynsla á grunnskólastigi er skilyrði, leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Framhaldsmenntun (MA, M.Ed, MBA eða diplóma að lágmarki) á sviði stjórnunar, uppeldis- og menntunarfræða eða sambærilegra greina er æskileg
  • Reynsla af stjórnun og faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í grunnskólastarfi er skilyrði
  • Reynsla af skólanámskrárvinnu og gerð starfsáætlunar
  • Þekking á teymiskennslu og reynsla af þverfaglegu námi
  • Góð þekking á upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í skólastarfi
  • Metnaður í starfi, sjálfstæði og brennandi áhugi fyrir skólastarfi
  • Lipurð í samskiptum, skipulagsfærni, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Mjög góð íslenskukunnátta ásamt góðri færni í ensku
Auglýsing birt26. mars 2025
Umsóknarfrestur9. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Suðurhlíð 9, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar