Brekkubæjarskóli
Brekkubæjarskóli

Staða skólastjóra Brekkubæjarskóla laus til umsóknar

Akraneskaupstaður leitar að umbótasinnuðum og farsælum leiðtoga til að leiða metnaðarfullt skólastarf í öflugum grunnskóla.

Brekkubæjarskóli er heildstæður skóli með 470 nemendur í 1. – 10. bekk og hefur náð góðum árangri í inngildandi skólastarfi og heildstæðri nálgun þar sem lögð er mikil áhersla á að hver nemandi fái að nýta hæfileika sína.

Brekkubæjarskóli er teymiskennsluskóli með áherslu á þverfaglega teymisvinnu. Gott orðspor fer af þessari vinnu og hafa fjölmargir skólar á Íslandi fengið kynningu á þessum vinnubrögðum.

Brekkubæjarskóli er Byrjendalæsisskóli og er lögð áhersla á fjölbreyttar aðferðir við nám og kennslu í öllum skólanum. Öflugt tónlistarstarf hefur einkennt skólann um langt árabil og lögð er áhersla á skapandi skólastarf. Á þriggja ára fresti setur skólinn upp stórt leikrit þar sem allir nemendur á unglingastigi fá tækifæri til að taka þátt.

Í Brekkubæjarskóla er virkt nemendalýðræði og vinnur skólinn markvisst að því að skapa leiðir fyrir nemendur til að hafa áhrif í öllu skólastarfi. Akraneskaupstaður vinnu að því að verða barnvænt sveitarfélag með innleiðingu Barnasáttmálans og á sér stað öflug samvinna innan bæjarins um aukna þátttöku barna í ákvörðunum sem varða þau.

Góður og fróður er skólastefna Brekkubæjarskóla og er skýr framtíðarsýn í anda lífsleikni, manngildis og hugmynda um að til þess að ná árangri í skólastarfi þurfi að hlúa að vellíðan og starfsánægju bæði nemenda og starfsmanna skólans. Markviss vinna er með dygðir þvert á allar námsgreinar er hluti af skólastefnunni.

Umfangsmiklar lagfæringar og breytingar hafa verið gerðar á húsnæði skólans og verður þeim lokið í janúar 2026. Þá verða til að mynda teknar í notkun nýjar kennslustofur fyrir list- og verkgreinar sem eru hannaðar í takt við nútímakennsluhætti.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita Brekkubæjarskóla faglega forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi
  • Stýra og bera ábyrgð á daglegum rekstri skólans á grundvelli fjárhagsáætlunar
  • Bera ábyrgð á stefnumörkun skólans í samræmi við lög og reglugerðir, aðalnámskrá grunnskóla, Menntastefnu Akraneskaupstaðar og aðra stefnumörkun sveitarfélagsins
  • Vinna náið með starfsfólki að því að viðhalda og skapa frjótt námsumhverfi með farsæld barna að leiðarljósi
  • Leiða samstarf nemenda, starfsfólks og foreldra
  • Ber ábyrgð á starfsmannamálum
  • Virk þátttaka í þróun og skipulagi skólastarfs á Akranesi
  • Ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagsins og bæjaryfirvöld
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfi til að nota starfsheitið kennari og kennslureynsla
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis og kennslumála
  • Reynsla af stjórnun, rekstri og skólaþróun
  • Hæfni og reynsla af faglegri forystu í menntamálum og starfsmannastjórnun
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaður fyrir öflugu skólastarfi
  • Skýr framtíðarsýn
  • Rík skipulagshæfni
  • Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Auglýsing birt14. mars 2025
Umsóknarfrestur30. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Vesturgata 120, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar