

Tímabundið starf í býtibúr og þjónustustuðning á legudeild geðrofssjúkdóma
Við óskum eftir að ráða til starfa öfluga liðsmanneskju í okkar góða hóp á legudeild geðrofssjúkdóma. Starfið felst í umsjón með umhverfi deildar s.s. undirbúningi og frágangi matmálstíma, línherbergi, þvottahúsi, geymslurýmum, starfsmannaaðstöðu og almennum rýmum og skipulagi á nauðsynlegu viðhaldi, ásamt virkum samskiptum við sjúklinga og samstarfsfólk.
Leitað er eftir þjónustulundaðri, lausnamiðaðri og jákvæðri manneskju sem er sjálfstæð og skipulögð í starfi. Viðkomandi er virkur þátttakandi í starfsemi deildarinnar og þarf að geta sýnt sveigjanleika í því síbreytilega umhverfi sem deildin er. Gert er ráð fyrir að viðkomandi sæki námskeið í grunnendurlífgun og sé vel að sér varðandi sóttvarnir og smitgát.
Á deildinni eru rými fyrir 16 skjólstæðinga, þar sem einstaklingar með geðrofssjúkdóma fá sérhæfða meðferð, allt frá bráðum veikindum og endurhæfingu. Deildarstarfið byggir á samvinnu þar sem mikilvægt er að sérhver starfsmaður fær að nýta styrkleika sína.
Starfið er dagvinna, fyrri hluta dags alla virka daga og er starfshlutfall eftir samkomulagi 60-80%.
Um er að ræða tímabundna ráðningu vegna afleysingar frá 1. júní 2026 til 1. september 2027.
Íslenska
Enska

























































