Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í geðrofs- og samfélagsgeðteymi - dagvinna

Það er laus staða í teyminu fyrir metnaðarfulla hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á þverfaglegri teymisvinnu og klínískri meðferðarvinnu.

Starfsumhverfið er spennandi, krefjandi og skemmtilegt. Um dagvinnu er að að ræða, en sé óskað eftir vöktum er það möguleiki í samstarfi við legudeildir geðþjónustu. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar. Staðan er laus frá og með 1. maí 2026, eða eftir samkomulagi.

Meginverkefni teymanna er að veita fólki sem greinst hefur með alvarlega geðsjúkdóma og aðstandendum þeirra þverfaglega og einstaklingsmiðaða þjónustu. Þjónustan byggir á batamiðaðri hugmyndafræði og skaðaminnkandi nálgun. Þjónustan fer fram á göngudeildinni, en einnig er þjónusta veitt í nærumhverfi þjónustuþeganna.

Markmið meðferðarinnar er að stuðla að bata, rjúfa félagslega einangrun og auka virkni og lífsgæði í daglegu lífi. Í teyminu starfa um 25 fagaðilar; læknar, hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar, sálfræðingar, atvinnuráðgjafar, jafningjar og málastjórar með fjölbreyttan bakgrunn.

Hjúkrunarfræðingar í teymi sinna einnig málastjórn. Hlutverk málastjóra er fjölbreytt og felst meðal annars í mati á geðrænum einkennum og mati á einstaklingsbundnum þörfum. Málastjóri sinnir meðferð og eftirfylgd, þróun meðferðaráætlana og vöktun og mati á árangri þjónustunnar. Málastjóri er einnig í samskiptum við aðstandendur sem og aðra aðila sem þjónusta einstakling.

Starfsemin er í stöðugri þróun og lögð er áhersla á virkt umbótastarf og hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki í mótun framtíðarsýnar, eflingu hjúkrunar, meðferðar og endurhæfingu fyrir einstaklinga með alvarlega geðsjúkdóma.Hjúkrunarfræðingi með áhuga á heildrænni nálgun og með reynslu af því að vinna með lífsstílstengda sjúkdóma gæti fundist starfið spennandi, þar sem mikil nýsköpun á sér stað í teyminu hvað varðar þróun á sérhæfðri lífsstílsíhlutun fyrir þjónustuþega teymis.

Góður starfsandi ríkir á deild og starfsumhverfið er fjölskylduvænt. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Eygló, deildarstjóra, ef óskað er eftir frekari upplýsingum um starfið.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Meistaranám er kostur
Einlægur áhugi á geðhjúkrun, reynsla af starfi í geðþjónustu Landspítala eða sambærilegu starfi er kostur
Mjög góð samskiptahæfni
Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
Hæfni til að vinna sjálfstætt og sýna frumkvæði í starfi
Stundvísi, áreiðanleiki og öguð vinnubrögð
Færni til að skipuleggja og forgangsraða verkefnum
Góð almenn tölvukunnátta og geta til að læra nýjungar
Góð færni í íslensku og ensku, önnur tungumálakunnátta er kostur
Bílpróf
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í þverfaglegu teymi, sinnir málastjórn, klínískri meðferð þjónustuþega og aðstandendastuðningi
Vaktstjórn og lyfjagjafir ásamt öðrum hjúkrunartengdum verkefnum
Heldur utan um skipulagningu og framkvæmd verkefna og vinnur samkvæmt stöðluðum verkferlum
Tekur þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu
Þjálfun og kennsla hjúkrunarnema
Starfar samkvæmt öryggisverkferlum deildar
Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
Auglýsing birt24. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kleppsgarður, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (32)
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Spennandi störf á meltingar- og nýrnadeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á kvenlækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu
Landspítali
Landspítali
Ertu sérfræðingur í hjúkrun?
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á Líknardeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Sérhæfður starfsmaður í ræstingum
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Skrifstofumaður/ Teymisstjóri í ritaraþjónustu dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali
Landspítali
Aðstoðarmaður deildarstjóra á öldrunardeild L5
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á bæklunarskurðdeild AB5 í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Næringarfræðingur á næringarstofu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Lífeinda- eða náttúrufræðingur á sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Geislafræðingur - Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð
Landspítali
Landspítali
Sálfræðingur á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í gigtarlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Gjörgæsla Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Teymisstjóri hjúkrunar á Heimaspítala barna
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í brjóstholsskurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali