Landspítali
Landspítali
Landspítali

Sérhæfður starfsmaður á speglunardeild við Hringbraut

Við óskum eftir sérhæfðum starfsmanni í dagvinnu á speglunardeild Landspítala við Hringbraut. Starfshlutfall og upphaf starfa er samkomulag. Starfið felst m.a. í umsjón með búnaði, þrif og umhirða áhalda og samskipti. Starfið er því fjölbreytt og krefjandi.

Speglunareiningin sinnir bæði almennum speglunum en er einnig sú sérhæfðasta á landinu og sinnir því sjúklingum alls staðar að. Á deildinni starfar um 30 manna hópur samhents starfsfólks, í nánu samstarfi við marga sérfræðinga Landspítala. Starfsstöðvar eru tvær, við Hringbraut þar sem stærri hluti speglana fer fram og í Fossvogi. Deildin er í sókn á mörgum sviðum. Þjónusta við sjúklinga hefur verið bætt og aukin, mikil og góð samvinna er við aðra starfsemi spítalans og hafa svæfingar við flóknari inngrip aukist mikið. Það hefur verið forsenda fyrir því að nýjar tegundir inngripa eru í boði og eru frekari nýjungar og framþróun á stefnuskránni.

Starfsánægja á deildinni er mjög góð og hér skipta góð samskipti og gagnkvæm virðing miklu máli, sem og skýr meðferðarmarkmið og áþreifanlegur árangur. Á deildinni starfar öflugur hópur sem getur miðlað mikilli þekkingu og reynslu. Áhersla er lögð á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og að veita góða og markvissa aðlögun.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Menntunar- og hæfniskröfur
Rík þjónustulund
Vandvirkni skipulögð vinnubrögð
Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Sjálfstæði í starfi
Stundvísi og áreiðanleiki
Hæfni til að vinna í teymi
Góð íslensku- og enskukunnátta
Helstu verkefni og ábyrgð
Þrif og umhirða áhalda og speglunartækja
Umsjón með vélbúnaði/ þvottavélum
Áfyllingar, móttaka vara og aðstoð við starfsfólk deildarinnar
Samskipti við dauðhreinsunardeild
Önnur tilfallandi verkefni
Auglýsing birt24. nóvember 2026
Umsóknarfrestur4. desember 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (32)
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar í starfsnámi - Spennandi störf á lungnadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Spennandi tækifæri á lungnadeild
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á bæklunarskurðdeild í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður - Almenn göngudeild við Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 1.-4. ári - Spennandi hlutastörf með námi á meltingar- og nýrnadeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Hjartalækningar
Landspítali
Landspítali
Skrifstofumaður - Hjartalækningar
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði óskast á brotaendurhæfingardeild aldraðra
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar á 1.- 4. ári - Spennandi hlutastörf með námi á lyflækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á taugaendurhæfingardeild
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á bráðalyflækningadeild A2
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild húð- og kynsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Starf hjá þjónustuveri
Landspítali
Landspítali
Fagstjóri grindarbotnssjúkraþjálfunar
Landspítali
Landspítali
Klínískur yfirlæknir í brjóstholsskurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Verkefnastjóri í samningateymi innkaupadeildar
Landspítali
Landspítali
Félagsráðgjafi í félagsráðgjafaþjónustu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Kennslustjóri sérnáms í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri á hjartarannsóknarstofu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á taugalækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á taugalækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali